Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sister Sister spila á Þorláksmessu

$
0
0

Mánudagskvöldið 23. desember, á Þorláksmessu, kl. 21 mun dúettinn Sister Sister spila í Flóru, Hafnarstræti 90 á Akureyri.

Einfaldleiki er eitt aðaleinkenni hljómsveitarinnar eða dúettsins Sister Sister. Eins og nafnið gefur til kynna þá samanstendur dúettinn af systrunum Helgu Margréti Clarke og Audrey Freyju Clarke sem báðar eiga það sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir fallegum laglínum og svo eru raddirnar þeirra nánast eins og hljóma því einstaklega vel saman.
Sister Sister hafa verið að koma fram á ótal stöðum í Reykjavík og einnig í heimabæ þeirra, Akureyri og nærsveitum. Sister Sister gáfu út sína fyrstu plötu í Desember 2013 sem skartar 7 frumsömdum lögum eftir þær sjálfar og einnig pabba þeirra (Michael Jón Clarke) ásamt einu sænsku þjóðlagi.
Það er frítt inn í Flóru og allir eru velkomnir.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trending Articles