Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er gos í bollanum!

$
0
0

Klara Tryggvadóttir sem er búsett í Vestmannaeyjum var bara lítil stelpa í Eyjum þegar hana dreymdi fyrir Vestmannaeyjagosinu. Hún segir aðspurð að enginn hafi þá skilið um hvað hún var að tala en draumurinn reyndist réttur.

Klara Tryggvadóttir

Klara Tryggvadóttir

Klara segist hvorki vera sjáandi eða miðill, ekki vera svo öflug, en draumarnir hennar hafa samt sem áður í gegnum tíðina haft forspárgildi að hennar mati og sem dæmi má nefna dreymdi hana fyrir gosinu í Eyjafjallajökli og skeikaði ekki á tímasetningunni.

Klöru dreymdi á dögunum draum sem hún túlkar að gæti verið forboði goss í Bárðarbungu. Fyst dreymdi hana eldgos og heilmikið aurflóð og stuttu síðar tölurnar 23, 7, 18, og 9. Klara segir að hún lesi tölurnar svo að gos gæti hafist klukkan 23 í kvöld fyrst það hófst ekki klukkan 7 í morgun og hætt við að það standi til 18. september.

Klara segist vona að hún hafi rangt fyrir sér og segir hlæjandi:

„Það væri leiðinlegt fyrir jarðfræðingana ef kerling sem vinnur í fiskimjölsverksmiðju hefur rétt fyrir sér“.

Klara drakk úr kaffibolla í fyrradag og skildi hann eftir á borði uppi hjá mömmu sinni. Þegar henni varð litið í bollann þegar hún hugðist þrífa hann beið hennar mynd í bollanum sem hún segir að gæti ekki verið skýrari. Þetta er engu líkara en að þetta sé hamfaragos segir Klara en ítrekar að hún voni að allt fari á besta veg og draumarnir reynist bara vitleysa.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283