Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fjandsamleg yfirtaka – Pólitísk aftaka

$
0
0

Reyni Traustasyni hefur verið sagt upp störfum sem ritstjóra DV og tilkynnt um ráðningu Hallgríms Thorsteinssonar í hans stað. Hallgrímur er ekki öfundsverður af hlutskipti sínu því aðfarir við yfirtökuna á DV, sem stýrt er af Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni, eru með því svæsnara sem maður hefur séð. Fjórir starfsmenn til viðbótar hafa óskað eftir starfslokum og margir starfsmenn eru að hugleiða stöðu sína eftir framkomu yfirtökumanna við Reyni Traustason.

Stjórn DV hefur sent frá sér yfirlýsingu sem mér persónulega þykir ekki til þess fallin að lægja öldur meðal starfsmanna DV en við skulum átta okkur á að DV er einungis fólkið sem þar starfar. Ef starfsfólkið gengur á dyr, þá standa nýir hluthafar illa með tómar innréttingar. Í yfirlýsingunni segir:

Stjórn DV hefur ákveðið að láta fara fram tvíþætta úttekt á félaginu. Í fyrsta lagi verður farið yfir rekstur og fjármál félagsins og í öðru lagi mun fara fram skoðun á faglegum þáttum í ljósi ábendinga sem fram hafa komið.

 feitletrun er mín

En hvaðan koma þessar ábendingar ? Ég ætla að velta því fyrir mér seinna í greininni.

Fjandsamleg yfirtaka er kannski ekki alltaf það versta sem komið getur fyrir fyrirtæki. Að einhverju leyti er sú aðgerð þó jafnan siðlaus og á mörkum þess að geta talist lögleg. Ólöglega hlutann er þó erfitt að færa sönnur á.

En fjandsamleg yfirtaka á fjölmiðli, framkvæmd af mönnum sem vilja stöðva óþægilegan fréttaflutning af sjálfum sér, slík yfirtaka er mjög alvarlegt mál fyrir samfélagið. Það ætti enginn að velkjast í vafa um að hér á landi er að finna fólk sem álítur sig hafið yfir gagnrýni. Ef síðan fjölmiðill sem gegnir samviskusamlega því hlutverki að vaka yfir vondri stjórnsýslu og offari ráðamanna fær ekki starfað fyrir árásum, þá er komin upp erfið staða sem vegur að öryggi fólks. En það er nákvæmlega það sem við erum að horfa upp á. Fjölmiðlar sem eiga að veita aðhald og reyna að gegna því hlutverki eru lagðir niður eftir hentugleika fjársterkra aðila sem ósáttir eru við umfjallanir.

Fyrir nokkrum dögum birtist yfirlýsing Þorsteins Guðnasonar, stjórnarformanns DV:

Á hinn bóginn hef ég um skeið haft áhyggjur af því að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins. Orðrómur þess efnis hefur magnast upp á síðkastið og hefur nú leitt til þess að ásakanir hafa verið settar fram á opinberum vettvangi af Sigurði G. Guðjónssyni hrl og Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. 

 Heimild Viðskiptablaðið

Aftur að ábendingum til stjórnar:

Líklegt hlýtur þó að teljast að orðrómurinn eigi uppruna sinn hjá Þorsteini Guðnasyni sjálfum, ekki hvað síst í ljósi atburða helgarinnar, þar sem Þorsteinn og Sigurður G. framkvæma yfirtökuna nánast í sameiningu.

Nú var að koma yfirlýsing frá Jóni Trausta Reynissyni, framkvæmdastjóra DV á facebook:

Yfirtakan á DV er að taka á sig sérstaklega ógeðfellda mynd. DV var yfirtekið með hjálp opinberra andstæðinga DV og á meðan reyndi yfirtökuhópurinn að ala á tortryggni gagnvart ritstjórninni og fyrirtækinu öllu í yfirlýsingum til fjölmiðla á veikum forsendum. Þar vitnuðu þeir í orðróm og ásakanir frá þeirra eigin lögmanni, Sigurði G. Guðjónssyni, sem er í meiðyrðamáli við DV, og bættu svo við öðrum ósönnum ásökunum, sem ekki eru leiðréttar þótt þeim sé sýnt fram á að þær séu ósannar. Það virðist eiga að ganga milli bols og höfuðs á trúverðugleika hinna sigruðu á DV.

Þannig hefur ritstjórinn nú verið sendur í leyfi í samhengi við óskilgreindar grunsemdir þeirra um fjármál félagsins, „til þess að nýkjörinni stjórn gefist ráðrúm til að kanna fjárhag félagsins og rekstur þess á þessu ári.“ Ritstjóri hefur hins vegar ekkert með fjármál félagsins að gera.

Og nú er tilkynnt til fjölmiðla, samhliða nýjum ritstjóra, að það eigi að gera úttekt á störfum þeirra sem koma að rekstrinum, af ótilgreindum ástæðum. Maður getur ekki búist við öðru en að forsvarsmenn fyrirtækisins sem maður vinnur hjá haldi áfram að leita leiða til að vega að trúverðugleika manns opinberlega.

Það er erfitt að horfa ekki á Lekamálið og yfirtökuna á DV í samhengi. Þótt vissulega sé verið að hætta sér út á ísinn, að blanda saman þessum málum, þá er annað bara ekki hægt. Það er ljóst að haldið var uppi vörnum fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur af valdamiklum aðilum. Slíkum hæðum náði gagnrýnin að hluthafar þeir sem juku við hlut sinn í DV á föstudaginn var, höfðu staðið vakt ráðherrans í bakið á ritstjórninni. Með öðrum orðum, beitt ritstjórnina þrýstingi í lekamálinu, aftan frá og líklegast ekki af neinni göfugri hugsjón.

Að lekamálinu hefur komið sjálfur forsætisráðherra, með ljóta gagnrýni í garð fjölmiðla og samsæriskenningar sem helst ættu heima í vísindaskáldsögu, þessar samsæriskenningar eru í sinfóníu við yfirlýsingu Þorsteins Guðnasonar um áhyggjur hans af því að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins með tilvísun í kenningar frá lögmanni sínum annars vegar og Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum hins vegar, en sá síðarnefndi hefur gengið hart fram fyrir hönd Hönnu Birnu í lekamálinu og gagnrýnt DV ótæpilega svo ekki sé meira sagt.

Fyrrverandi Hæstaréttardómari hefur staðið í heilögu stríði gegn blaðinu, án þess að taka það einu sinni fram að hann sé að störfum fyrir ráðherra í málinu, jafnvel neitað að svara því hvort hann starfaði fyrir konuna, þess í stað hefur hann ritað greinar sem fólk tekur sem hlutlægu mati hans, en ekki einhliða varnarskrifum. Þetta er þrýstingur á störf blaðamanna sem ekki er fyrir neina aukvisa að sitja undir og starfa. Minna hæfir blaðamenn hefðu gefist upp fyrir löngu.

Þannig að hvort sem aðförin að DV á rætur sínar að rekja alla leið inn í ríkisstjórn Íslands eða ekki þá er aftakan pólitísk að því leyti að árásir þingmanna, núverandi og fyrrverandi embættismanna etc. á ritstjórn blaðsins, voru til þess fallnar að veikja varnir blaðsins nógu mikið til þess að búa í haginn fyrir yfirtökuna sem allir högnuðust á, jafnt stjórnmálamenn sem nýir eigendur. Þá er aftakan framkvæmd af lögmanni sem stýrt hefur málsókn á hendur blaðinu fyrir hönd manna sem hlotið hafa fangelsisdóma fyrir fjárglæfrastarfssemi. Þetta eru menn sem telja milljarða fjárglæfrastarfssemi sína hafna yfir gagnrýni og umfjöllun, rétt eins og menn töldu Íslenska fjármálakerfið hafið yfir gagnrýni fram til ársins 2007. Þannig að allir græða, jafnt meðlimir ríkisstjórnar sem og þeir sem tóku DV yfir, allir græða nema almennir íslenskir borgarar.

Eins og málin standa þá er engin leið að sjá hver sé raunverulegur eigandi DV í dag. Það eina sem við vitum er að þeim eiganda, var illa við umfjöllun blaðsins um Lekamálið og umfjöllun blaðsins um Framsóknarflokkinn. 40 milljónir sem settar voru inn í félagið nú, veit enginn hvaðan koma. Yfirtakan á blaðinu er því fyrir mér gerningur sem þarfnast umfjöllunar og einhverra viðbragða af hálfu yfirvalda, Blaðamannafélagsins, fjölmiðlanefndar og samfélagsins alls.

Eftir situr ráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem ekki hefur séð sóma sinn í því að segja af sér. Eftir situr Tony Omos, sem ekki hefur verið boðið að snúa aftur til Íslands. Eftir situr síðan almenningur, sem sviptur hefur verið þeim fjölmiðli sem vakað hefur yfir afglöpum, misferli og vondum stjórnarháttum þeirra sem telja sig hafna yfir gagnrýni.

 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images