Mikil mengun af völdum brennisteinsdíoxíðs mældist um tvö leytið á Reyðarfirði í dag. Samkvæmt fréttum Ríkisútvarpins virðist það versta vera gengið yfir en óvissa ríkir um framhaldið. Heilbrigðu fólki er uppálagt að vera ekki að reyna á sig líkamlega utandyra og börn og þeir sem eru viðkvæmir fyrir ættu að halda sig innandyra og slökkva á loftræstingu ef hún er fyrir hendi.
Viðmiðunar- og heilsuverndarmörk vegna mengunar. Ljósmynd af vefnum reykjavík.is.
Ljósmynd Lára Ómarsdóttir




