Jólin eru skemmtilegur tími og hafa sinn sjarma en það er gott þegar þau eru liðin hjá. Ég er alls enginn Grinch en ég mun ekki sakna eftirfarandi:
1. Allur jólapappír búinn og það á eftir að pakka inn einni gjöf. Alltaf ein frænka sem fær bara slaufu á pakkann sinn eða fær hann pakkaðan inn á „frumlegan“ hátt í dagblöð.
2. Lagið, Ég hlakka svo til, með Svölu Björgvins og lagið, Jólahjól, í alvöru! Get ekki mikið meira af þessari tónlist. Gott að þurfa ekki að hlusta á þetta fyrr en eftir heilt ár.
3. Mackintosh molar. Þrír, fjórir, fimm molar eru í lagi en endalaust í öllum verslunum og boðum. Það er bara of mikið af hinu góða.
4. Troðfullar verslunarmiðstöðar. Þarf ég að segja meira?
5. Jólapeysur. Þær eru skemmtilegar í smá stund en þegar allir eru búnir að birtast í jólapeysum á Facebook og Instagram þá fær maður á endanum nóg. Ekki fleiri jólapeysumyndir, takk.










