Fjölskylda Sævars Rafns Jónassonar, sem féll fyrir hendi lögreglu þann 2. desember síðastliðinn, hefur ákveðið að bera Hraunbæjarmálið svokallaða undir Mannréttindadómstól Evrópu. Mannréttindalögfræðingurinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur hafið undirbúningsvinnu fyrir kvörtunina sem mun berast dómstólnum innan nokkurra mánuða.
Kvörtunin mun aðallega snúa að meintum brotum íslenska ríkisins á rétti Sævars til lífs samkvæmt 2. grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Auk þess snýr kvörtunin að 13. grein mannréttindasáttmálans sem segir fyrir um að borgarar verði að hafa aðgang að skilvirkum réttarfarslegum úrræðum telji þau ríkið hafa brotið á mannréttindum sínum. Þá kemur einnig sérstaklega til skoðunar meint brot ríkisins á skyldu þess til þess að framkvæma svokallaða skilvirka rannsókn á dauða Sævars.
Þórhildur Sunna nýtur liðsinnis fjölda lögfræðinga víðsvegar að úr heiminum sem rétt eins og hún ætla að gefa vinnu sína við gerð kvörtunarinnar. Teymið hittist reglulega í Den Haag í Hollandi, en Þórhildur stundar þar starfsnám hjá Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum fyrir fyrrverandi Júgóslavíu. Stærstur hluti teymisins stundar einnig starfsnám hjá dómstólnum eða er þar í fullu starfi. Aðrir meðlimir hópsins vinna fyrir hin ýmsu mannréttindasamtök eða háskóla í Hollandi. Einnig njóta þau liðsinnis tveggja sérfræðinga í dómasögu Mannréttindadómstólsins.
Lögfræðingateymið (frá vinstri)Kate Pearson, Kartini Saddington, Andreja Jerončič, Farah Mahmood, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Melani Vranjes, Bas Volkers og Jérôme Temme. Á myndina vantar Philipp Müller, Ioanna Ivanova, Elena Grace, Jessica Peck, Molly Martin og Alek Vujik.
Greinar Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur mannréttindalögfræðings í Kvennablaðinu hafa vakið mikla athygli en þær eru: Yfirvöld þegja þunnu hljóði um Hraunbæjarmálið, Hraunbæjarannáll: Dularfulli hermaðurinn, Hraunbæjarannáll: Lífsháski lásasmiðsins, Hraunbæjarannáll: Drápið, Hraunbæjarmálið stiklað á stóru.
Ennfremur birti Þórhildur Sunna opið bréf til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Enn hefur ekkert svar borist frá ráðherranum.




