Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ótrúlega falleg mohair-peysa – uppskrift

$
0
0

Í dag birtum við uppskrift af æðislega fallegri mohair-peysu sem  Guðrún Hannele Henttinen þýddi og staðfærði.

Guðrún Hannele er textílkennari og menntunarfræðingur og hefur aflað sér þekkingar á kennslufræði textílgreina í háskólum hér á landi, í Finnlandi og í Kanada. Hún hefur kennt textílmennt á ýmsum skólastigum um árabil. En nú um stundir á prjón hug hennar allan enda hefur hún rekið STORKINN, elstu garnverslun landsins, í næstum sjö ár.

Guðrún Hannele.

Guðrún Hannele.

Í Storkinum kennir hún á námskeiðum í prjóni, hannar sjálf og þýðir uppskriftir frá erlendum hönnuðum. Af öllu öðru prjóni ólöstuðu þá finnst henni skemmtilegast að prjóna vettlinga. Hún prjónar alltaf þegar færi gefst, enda skapandi og afslappandi, og vandar valið á garni því prjónatíminn er dýrmætur.

storkurinn

Þrílit Bouclé peysa

Peysan er öll prjónuð úr tvöföldu garni, einum þræði af ljósu bouclé-garni og einum af tvinnuðu mohair. Þannig fást mismunandi litbrigði.

Hönnun: Jena Kofoed

Stærð: S – M – L

Yfirvídd á peysunni: 104 – 110 – 116 cm

Sídd frá hálsmáli að fit: Um 63 – 65 – 67 cm

Garn: Mohair Bouclé 300 – 300 – 300g hráhvítt og tvinnað Kidmohair 50g af 3 litum: rauðleitu, gulu og ljósgráu.

Garnið er frá Canard: Mohair Bouclé (78% Mohair/13% ull/9% nælon).100 g = 170m. Tvinnað Kidmohair (65% kidmohair/35% merínóull) 50g = 175m (fæst í Storkinum).

Prjónar: Hringprjónn nr 9 (80cm) og sokkaprjónar nr 9.

Prjónfesta: 10L og 15 umf í sléttprjóni með einum þræði af hvorri tegund af garni á prjóna nr 9 = 10 x 10 cm. Ef prjónfestan passar ekki þarf að prófa fínni eða grófari prjóna.

Stribet_sweater_i_boucle_2

 

Aðferð

Peysan er öll prjónuð með tvöföldu garni, einum þræði af Mohair bouclé (sami litur í allri peysunni) og einum af tvinnuðu mohair (3 mismunandi litir).

Bolurinn og ermarnar eru prjónaðar í hring og svo sameinað á einn hringprjón og tekið úr með laskaúrtöku.

Orðalykill

L = lykkja, lykkjur

umf = umferð

S = slétt

s = saman

z = snúnar / prjóna aftan frá

sléttprjón = fram og til baka; slétt á réttunni og brugðið á röngunni, hringprjón; alltaf slétt

Útaukningar

1Sz = aukið út með því að prjóna þverbandið á milli L snúið sama hvorum megin.

Úrtökur

2Ss = 2 lykkjur sléttar saman, halla til hægri.

2Ssz = 2 lykkjur teknar óprjónaðar, ein í einu framan frá, vinstra prjóni stungið inn í báðar lykkjurnar og þær prjónaðar saman (aftan frá), halla til vinstri.

BOLUR

Fitjið upp 104-110-116L með hringprjónum nr 9 og 1 þræði af rauðleitu tvinnuðu mohair og 1 þræði af hráhvítu bouclé. Setjið merki við upphaf umferðar.

Prjónið slétt þar til bolurinn mælist 25 cm. Haldið áfram með hvíta bouclé-garnið en skiptið yfir í gula mohair-garnið og prjónið áfram slétt þar til gulan röndin er orðin 12 cm. Prjónið þar til 2L eru eftir að byrjun umf. Fellið af 4L fyrir handveg, prjónið 48-51-54L, fellið af 4L, prjónið 48-51-54L. Geymið.

ERMAR

Fitjið upp 28-30-32L á sokkaprjóna nr 9 með 1 þræði af hvítu bouclé + 1 þræði af rauðleitu tvinnuðu mohair. Setjið merki við byrjun umferðar. Prjónið slétt og aukið jafnframt út 1L eftir fyrstu L umf og 1L fyrir síðustu L umf.

Endurtakið útaukninguna í 6. hverri umf alls 3 sinnum, eftir það í 8. hverri umf 3 sinnum = 40-42-44L.

Þegar ermin mælist 29cm er skipti úr rauðleita þræðinum yfir í þann gula.

Prjónið áfram slétt þar til gula röndin mælist 15-15-16cm. Fellið af 2L sitt hvorum megin við byrjun umferðar fyrir handveg. Geymið 36-38-40L sem eftir eru. Prjónið hina ermina eins.

LASKAÚRTAKA

Sameinið á hringprjóninn ermar og bol þannig að ermar komi þar sem fellt var af fyrir handveg á bol. Setjið merki þar sem ermar og bolur mætast á 4 stöðum.

Samtals = 168-178- 188L.

Umferðin byrjar þar sem bak og vinstri ermi mætast. Prjónið 1 umf slétt. Skiptið úr gulu yfir í ljósgráan þráð og prjónið áfram berustykki slétt með laskaúrtökum sitt hvorum megin við merkin þannig:

*1S, 2Ss, prjónið þar til 3L eru eftir að næsta merki, 2Ssz, 1S*, endurtakið frá *til* alls 4 sinnum (= 8L teknar úr í umf). Takið þannig úr í annarri hverri umf alls 15-16-17 sinnum og skiptið yfir í styttri hringprjón eða sokkaprjóna þegar lykkjunum fækkar = 48-50-52L. Endið á að prjóna 5 umf slétt og fellið af.

Frágangur

Saumið opið í handvegum saman, gangið frá endum.

Stribet_sweater_i_boucle__b468m


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283