Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Haustið er hér

$
0
0

Nú erum við búin að kveðja sumarið og lögð af stað í átt til vetrar með viðkomu í sjálfu haustinu. Á þessum árstíma kemst rútína aftur á lífið, eftir frí og frjálslegheit sumarsins. Skólar eru byrjaðir, fólk farið að huga betur að heilsunni með því að mæta í ræktina, plana máltíðir, svefnvenjur aftur komnar í fastar skorður, virka daga amk., heimalærdómur og svo mætti lengi telja.

Rigning og rok láta finna fyrir sér og þá er upplagt að hafa kósí heima eftir langan vinnudag, útbúa holla og góða súpu (sjá uppskrift neðst í pistli) og kveikja á kertum. Burtséð frá venjum okkar er mikilvægt að huga að heilsunni, ekki síst þegar árstíðir breytast. Ég hef tekið saman nokkur einföld ráð sem hjálpa til við það.

SAFAHREINSUN

Safahreinsun er einn þáttur sem ég nota til að huga vel að líkama og sál. Þessi aðferð hentar mér vel og ég mæli með því þegar ég er spurð að nota safahreinsun amk. tvisvar á ári. Helst nota ég hreinsunina við árstíðaskipti líkt og nú og undirbý mig þannig undir veturinn og það álag sem fylgir mínu starfi.

Það er gott að hugsa það út frá því að á þennan hátt nái maður að losa líkamann við veislu sumarsins og fái þá tilfinningu að öll eiturefni skiljist hraðar úr líkamanum og að hann verði hreinni og ferskari. Það er alltaf gott að núllstilla sig þegar breytingar eiga sér stað og safahreinsun er einmitt ein leið til að auka orku og hreinsa líkamann.

Tilvalið er að nota þennan tíma og gera aðrar mikilvægar breytingar á lífi sínu hverjar svo sem þær eru. Mikilvægt er að hugsa vel um sig og skipuleggja þá daga sem hreinsun stendur yfir, þannig minnkum við stressið og áhyggjur sem oft og tíðum hrjá okkur og gætu orðið til þess að gefast upp.

Fyrir þá sem eru óvanir, mæli ég með að venja líkamann smám saman við hreinsun sem þessa. Byrja á því að taka einvörðungu einn dag eina viku, þá næstu tvo daga og þriðju vikuna þrjá daga í röð. Fyrir þá sem vanari eru, er mjög gott að ná fimm dögum samfleytt á söfum.

Nauðsynlegt er að drekka mikið vatn, 2–3 lítra alla dagana sem hreinsun á sér stað. Fyrstu 2–3 dagarnir geta verið erfiðir, máttleysi, hausverkur og svengd, en mundu að vellíðanin sem fylgir því að ljúka hreinsuninni er þess virði, jafnt fyrir líkama sem sál.

Ekki bara að þú losir líkamann við eiturefnin heldur mun bjúgurinn renna af þér, þú léttist eitthvað, húðin glóir og orka endurnýjast. Allt þess virði að leggja á sig nokkra erfiða daga.

linda i fjörunni

SJÁLFSRÆKT

Það að hugsa um sjálfa(n) sig er nauðsynlegt. Að kalla það sjálfselsku á neikvæðan hátt er algjörlega úrelt, enda ekkert nema jákvætt við það að elska sjálfa(n) sig og sinna heilsunni, því eins og við vitum öll gerum við ansi lítið án góðrar heilsu.

Við erum flest undir álagi bróðurpart vikunnar, ég þekki það alltof vel sjálf, og því enn nauðsynlegra að taka frá tíma í sjálfsrækt. Það er ekki nokkur leið að minnka stressið ef við gefum okkur ekki tíma til að vera. Tökum okkur frí og eigum stefnumót við okkur sjálf. Þetta er ekki spurning um að hafa ekki tíma, búðu hann þá til því þetta skiptir gríðarlega miklu máli, svo þú njótir lífsins enn betur.

Hér eru nokkrir punktar um sjálfsrækt:

- Taktu frá eitt kvöld í viku, þar sem þú ert með slökkt á sjónvarpi, tölvum
og símum. Lestu þess í stað uppbyggilega bók.
- Þjálfaðu líkamann 4-5 sinnum í viku, í 30-60 mínútur í senn.
- Gerðu teygjur alla daga, í amk. 10 mínútur.
- Hugleiddu alla daga, í 5-15 mínútur.
- Farðu í göngutúr úti í náttúrinni um helgar.
- Hvíldu þig þegar þú finnur fyrir þreytu.
- Nærðu líkamann með hollri fæðu.
- Farðu í sauna nokkrum sinnum í viku.
- Njóttu samvista við fólk sem bætir líf þitt og auðgar andann.

IMG_9262

Ljósmynd. Ásta Kristjánsdóttir

HUGLEIÐSLA

Ef ég ætti að gefa þér eitt ráð til að eignast betra líf myndi ég hvetja þig til þess að hugleiða. Með því að hugleiða hef ég náð að tengjast betur mínu innra sjálfi, eða innsæi, og þegar ég hlusta, þá tek ég betri ákvarðanir. Auk þess líður mér best þegar ég stunda hugleiðslu að staðaldri. Það geta allir hugleitt.

Hugleiðsla er afar gagnleg fyrir allt í senn huga, líkama og sál. Hugleiðsla er leiðangur inn á við sem græðir, eflir skilning og vekur breytingar. Mestallt lífið horfum við á atburði og fyrirbæri utan frá og við trúum því að þangað út megi sækja hamingju og frið. Í hugleiðslu stækkar innri sjóndeildarhringur okkar, meðvitund sem hvorki er bundin stað né tíma vex og dafnar, við stígum út úr lokuðu egói yfir í sívökula núvitund.

Hugleiðslan gerir okkur kleift að kanna okkar dýpsta eðli og sanna sjálf. Hugleiðslan vekur í raun minningar um djúpa kyrrð innra með okkur. Hugleiðsla snýst ekki um að þröngva huganum til að vera hljóður, heldur að finna kyrrðina sem þegar er til staðar innra með okkur.

Innst inni lúrir hrein núvitund og kyrrð sem er ósnortin af fortíðareftirsjá eða framtíðaráhyggjum. Hugleiðsla opnar skilning okkar á því að við erum fær um að taka meðvitaðar ákvarðanir í lífinu. Ákvarðanir sem kalla á betri árangur og meiri kærleika og frið.

Minning um fullkomnun glatast ekki. -Deepack Chopra

IMG_2802

HAUSTSÚPA:

1 msk kókosolía
1 laukur, saxaður gróft
2 hvítlauksgeirar, saxaðir gróft
2 g ferskt engifer, saxað smátt
0,5 msk cumin (ekki kúmen)
1 msk coriander
1 tsk kanill
1 tsk negull
250 g tómatar, saxaðir gróft
450 g sætar kartöflur, saxaðar gróft
1 stór gulrót, söxuð gróft
750 ml vatn
1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
1 gerlaus grænmetisteningur
20 g cashew hnetur, þurrristaðar á pönnu
1 tsk cayenne pipar (má sleppa)
1 msk hnetusmjör (hreint og án viðbætts sykurs)
Nokkur corianderlauf (má sleppa)
(maukist með töfrasprota, í þykka og bragðmikla haustsúpu og berið fram).

Uppskrift fengin frá einni af konunum á lífsstílsnámskeiðinu “Beauty by Linda”


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283