Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gott heilbrigðiskerfi skilar engu nema nokkrum auka ævidögum í roki og rigningu

$
0
0

Fréttablaðið segir að 66 læknar flytji burt árlega. Það er skiljanlegt. Hver vill hafa það á samviskunni að hafa bjargað lífi Íslendings? Hann er alveg óþolandi, kaus vitlaust í seinustu kosningum og kann ekki að nota stefnuljós. Hættulegt fólk. En læknar eru vel gefið fólk. Þeir fatta það að kaupa bara flugmiða aðra leiðina þegar þeir fara til útlanda.

Rúmlega helmingur lækna starfandi á landinu er eldri en fimmtugur, segja þeir mér. Það er skárra en að þeir væru allir undir tvítugu. Gleðjumst yfir því. Ekki hef ég miklar áhyggjur af háum aldri, hann skýrist ábyggilega af því að læknanámið tekur þrjátíu ár. Allur þessi tími í að læra að gúgla sjúkdóma og skrifa illa eins og smákrakki. Svo þarf að mennta lyfjafræðinga sérstaklega í dulkóðun svo þeir geti ráðið í þessa forljótu læknaskrift sem tók þá allt læknanámið að fullkomna. Ég held við getum vel verið án þessara lækna ef við drekkum bara nóg malt og lýsi.

Þú þarft að vera sérstakur karakter til að vilja vera læknir. Vaðandi polla í míglekum og úr sér gengnum spítala, á harðahlaupum til þess eins að heyra hvað næsta manneskja hefur það ömurlegt. Þeir segja þetta „gefandi“. Ekki nógu gefandi í aðra hönd samt.

Ég skil ekki þetta fólk. Ég er eins og afi minn að því leyti. Ef eitthvað tekur lengri tíma en þrjú ár að læra þá er það ekki þess virði. Þess vegna er hann ekki með tölvupóst.

En það segir sig sjálft að auðvitað vill hámenntað fólk ekki vera hérna. Það fer og við sitjum uppi með dreggjarnar. Þess vegna fór landið á hausinn og mun gera það aftur. Enginn virðist hafa lært af reynslunni. Íbúðin mín er t.d. búin að snarhækka í verði aftur og ég hef ekki einu sinni skipt þar um peru. Það skeður bara sjálfkrafa eins og endurframboð Ólafs Ragnars. Galdrar.

Nú er einn læknir á hverja 295 íbúa samkvæmt formanni Læknafélagsins. Það er ekki svo slæmt en útskýrir afhverju ég þarf að panta tíma hjá lækni með árs fyrirvara. Ég plana veikindafríið mitt eins og aðrir skipuleggja ættarmót. En ég held að þetta lagist af sjálfu sér. Þegar fólk fær ekki lífsnauðsynlega læknishjálp út af læknaskorti þá smám saman fækkar þeim sem þurfa á læknishjálp að halda. Segir sig sjálft. Þetta reddast.

Annars höfum við það allt of gott. Fólk sem vill endilega fá að búa á eyðieyju úti í miðju hafi eins og við, fjarri siðmenningunni, getur ekkert verið að heimta að fá þangað læknishjálp. Það eru sárafáir læknar starfandi meðal villimannanna í regnskógunum. Afhverju ættu villimennirnir á regnskerinu að hafa það eitthvað betra?

Vill fólk virkilega eyða dýrmætu skattfé í heilbrigðiskerfi til þess eins að fá að lifa einhverja aukadaga hérna í rigningunni og rokinu?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283