Utanríkisráðherra vor og nýyfirlýstur jafnréttissinni tilkynnti á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að Ísland og Súrinam muni gangast fyrir alþjóðlegri ráðstefnu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á næsta ári. Rakarastofufundur er það kallað (Barbershop), en þar munu eingöngu karlkynsleiðtogar ungir sem aldnir koma saman til að ræða kvenréttindi og stöðu kvenna í heiminum með áherslu á ofbeldi gegn konum.
Gunnar bætti við að ráðstefnan væri einstök fyrir þær sakir að aðeins karlmenn myndu sækja hana.
Lítt sigldur er Gunnar ef honum finnst það tímamótafrétt að karlmenn komi saman til funda.
(Reyndar hefur síðar komið fram að einhverjar konur muni verða viðstaddar og því óvíst að hin einstaka rakarastofustemning náist upp.)
Niðurstaða ráðstefnunnar mun örugglega koma á óvart og skila árangri enda fáir betur til þess fallnir en karlmenn að setja sig í ólík og erfið spor kvenna sem þola ofbeldi um víða veröld.
Gunnar sagði jafnframt á þinginu að þetta yrði einstakt framlag til „Peking plús tuttugu“ framtaksins og „Hann fyrir hana“ herferðina.
Gunnar Bragi virðist vera dálítið áttavilltur þegar kemur að jafnréttismálum og viðhorfum kvenna til atvinnu og framfærslu fjölskyldna sinna því þegar hann var spurður út í mjög svo ójöfn kynjaskipti íslenskra sendiherra, en 28 karlmenn eru nú starfandi sendiherrar og aðeins sjö konur, þá svaraði Gunnar því svo til:
„… sendiherrastörf kalla oft á tíðum á vinnutíma sem er allan sólarhringinn og gerir kröfu á flutningsskyldu milli landa. Það gæti verið að konur sækist síður eftir þessum störfum.“
Þetta er kannski rétt hjá honum? Við konur erum náttúrlega nýgræðingar þegar kemur að því að vinna á öllum tímum sólarhrings, viljum ekkert láta ónáða okkur um miðjar nætur vegna vegalausra landa okkar.
Svo er það bannsett flutningsskyldan. Það hvarflar ekki að nokkurri konu að flytja með fjölskylduna á milli landa. Konur eru ekkert fyrir það að vera í útlöndum!
Hvaða kvenmaður nennir að pakka ofan í ferðatöskur til þess að búa í lúxusvillum í vernduðum hverfum, eiga kost á einkaskólum fyrir börnin sín og þiggja milljón(ir) á mánuði í laun skattfrjálst?







