Lífsneistar Leifs Þórarinssonar (1934 – 1998)
Sunnudaginn 12. október kl. 17.15 mun Caput hópurinn standa fyrir tónleikum í Norðurljósasal Hörpu með tónlist Leifs Þórarinssonar. Með þessum tónleikum vill hópurinn heiðra minningu Leifs í tilefni þess að í ágúst síðast liðnum voru liðin áttatíu ár frá fæðingu hans. Flutt verða nokkur af meistaraverkum Leifs, verk sem heyrast nær aldrei, en efnisskráin spannar nánast allan tónsmíðaferil hans.
Barnalagaflokkurinn fyrir píanó var skrifaður í Vínarborg árið 1954 fyrir Rögnvald Sigurjónsson. Hann sagði síðar: „Sérstaka ánægju hef ég af Barnalagaflokknum hans Leifs, enda er hann orðinn klassískur og hefur í sér lífsneista, sem á eftir að endast lengi“.
Hitt píanóverk tónleikanna, Klasar, er af allt öðrum toga. Þetta er ódagsett dadaískt tilraunaverk og hefur sennilega ekki verið flutt síðan árið 1967 þegar Leifur og Atli Heimir Sveinsson léku það í sameiningu í Ríkisútvarpinu. Valgerður Andrésdóttir mun flytja þessi verk á tónleikum Caputs.
Afstæður, samdar í New York árið 1960, fyrir fiðlu, píanó og selló er eitt höfuðverk íslensk módernisma, stutt og spennandi verk sem gerir feiknalegar kröfur til flytjenda. Flytjendur núna verða þau Auður Hafsteinsdótttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Snorri Sigfús Birgisson.
Strengjakvartettinn frá 1969 er aftur á móti í hæsta máta expressjónískt verk með trúarlegum undirtóni. Dr. Guðmundur Emilsson lýsti því yfir í útvarpi á sínum tíma að þetta væri eitt besta verk íslenskrar tónlistarsögu. Samt hefur þessi kvartett sárasjaldan verið spilaður enda ekki áhlaupaverk. Leifur skrifaði af miklu innsæi fyrir strengjahljóðfæri og hér fer hann með þau út á ystu nöf.
Strengjakvartettin skipa auk Auðar og Bryndísar, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Zbigniew Dubik.
Leifur skrifaði líka af sjaldgæfu næmi fyrir flautuna en hann starfaði um árabil náið með flautusnillingnum Manuelu Wiesler. Hún frumflutti Flautukonsertinn, sem síðar hlaut nafnið Vor í hjarta mínu, á tónleikum í Þjóðleikhúsinu árið 1983. Á þessum tónleikum er það Áshildur Haraldsdóttir sem fer með einleikshlutverkið en hún var nemandi Manuelu.
Frá síðasta tónsmíðatímabili Leifs verður flutt eitt fallegasta verk hans, Grafskrift fyrir Bríeti, við ljóð Matthíasar Jochumsonar. Verkið er samið fyrir kvenraddir og hörpu og var frumflutt við útför Bríetar Héðinsdóttur árið 1996 og hefur ekki verið flutt á opinberum tónleikum áður. Það eru konur úr Kammerkór Grafarvogskirkju sem flytja verkið ásamt Elísabet Waage.
Stjórnandi á tónleikunum er Hákon Leifsson.
Í tilefni tónleikanna og áttræðisafmælisins verða gefnar út tvær ritgerðir Kolbeins Bjarnasonar, flautuleikara Caput hópsins, um tónlist Leifs. Þetta eru B.A og M.A . ritgerðir hans frá Listaháskóla Íslands.
Einnig verður opnuð heimasíða tileinkuð Leifi á tónleikadaginn.
Efnisskrá:
Barnalagaflokkur fyrir píanó (1954)
Afstæður fyrir fiðlu, píanó og selló (1960)
Strengjakvartett nr. 1 (1969)
Klasar fyrir píanó (1967)
Vor í hjarta mínu – fyrir flautu og litla hljómsveit (1984 – 1993)
Grafskrift kvenraddir og hörpu (1996)