Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Jólapeysusamkeppni Kvennablaðsins

$
0
0

Í fyrsta sinn ætlum við að fara af stað með prjónasamkeppni Kvennablaðsins.
Við rennum svolítið blint í sjóinn með hvort áhugi sé fyrir slíkri keppni en þá er bara að láta á það reyna. Við höfum fengið nokkur fyrirtæki í lið með okkur svo unnt sé að veita vegleg verðlaun.

raud jolapeysa

Nú nálgast jólin óðum og því datt okkur í hug að gangast fyrir samkeppni um handprjónaðar jólapeysur. Peysan þarf að vera ykkar hönnun og hugmyndaverk.

Við hvetjum ykkur til að láta sköpunargleðina ráða ferðinni og hanna jólapeysu sem eftir verður tekið!

se-cool-ud-i-en-klassisk-julesweater

Hvað verður þema jólapeysunnar þinnar árið 2014: Hátíð í bæ, Snjókorn falla, Skelfileg jól, Snæfinnur…? Þið stjórnið þessu alveg.

Allir geta tekið þátt í keppninni og mega peysurnar vera hvort sem er á fullorðna eða börn.

55228a8b5026

Við biðjum um að ljósmyndir af fullgerðum peysum verði sendar til okkar á netfangið Kvennabladid@kvennabladid.is fyrir 5. desember næstkomandi.

Nauðsynlegt er að taka myndir af peysunum á einhverjum sem klæðist þeim og skulu myndirnar vera teknar í eins miklum gæðum og mögulegt er, annaðhvort á síma eða á myndavél. Gott er að fá nokkrar myndir af hverri peysu en að minnsta kosti tvær myndir. Aðra sem sýnir vel framhlið peysu og hina sem sýnir bakið. Ef um mynstur er að ræða má endilega taka nærmyndir af þeim.

hreindyr

Þeir sem treysta sér til að senda uppskriftirnar með geri það endilega á wordskjali en við gerum okkur grein fyrir því að margir vilja prjóna af fingrum fram og því er ekki nauðsynlegt að skila skrifaðri uppskrift.

Veitt verða þrenn verðlaun:

Jólapeysa Kvennablaðsins 2014

Frumlegasta jólapeysan 2014

Lesendaverðlaun 2014 fyrir þá jólapeysu sem fær mestu viðbrögðin þegar við birtum myndir af öllum peysunum sem kunna að berast.

Verðlaunahafarnir þrír fá vegleg verðlaun en þau eru:

7991-0301a2

Yndislega hlý værðarvoð frá Ístex

Screen Shot 2014-11-05 at 11.44.44 f.h.

Sandeman portvín og sex glös

28814_XXX_v1-w2000

Tvær glæsilegar bækur fyrir prjónara, Prjónabiblían eftir Grétu Sörensen og bók Hélene Magnússon, Íslenskt prjón frá Forlaginu.

Íslenskt prjón eftir Hélene Magnússon.

Íslenskt prjón eftir Hélene Magnússon.

Prjónabiblían eftir Grétu Sörensen.

Prjónabiblían eftir Grétu Sörensen.

Við vonum að lesendur Kvennablaðsins taki vel í þessa prjónakeppni og með þeim orðum óskum við öllum þeim sem hafa hug á að taka þátt góðs gengis! Endilega látið vita í athugasemdakerfinu ef þið hafið áhuga á því að vera með!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283