Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ríkið gefur peninga á hverjum degi

$
0
0

Ekki finnst mér stórmannlegt að væla yfir því að ákveðinn hópur fólks skuli fá fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Maður býr í samfélagi og þar er ýmislegt niðurgreitt fyrir aumingja. Það er bara í góðu lagi.

Við byggjum milljarða jarðgöng úti á landi fyrir örfáa sauðfjárbændur að rúnta í gegn á dráttarvélunum sínum, niðurgreiðum leikskóla fyrir foreldra sem nenna ekki að sinna barninu sínu og höldum uppi Alzheimersjúklingum á rándýrum elliheimilum sem myndu ekki einu sinni taka eftir því þó við gleymdum þeim bara.

Þessu er ég vanur og þetta er fínt. Það er bara happdrætti hver er svo heppinn að fá eitthvað úr okkar ýmsu sameiginlegu sjóðum. Aldrei hef ég fengið krónu úr verkfallssjóði svo ég nefni dæmi.

Samfélagið borgar prestum laun fyrir að gera ekki neitt og ljúga að börnum og gamalmennum, menntun lögfræðinga sem síðar meir skrifa innheimtubréfin til mín og almennilega bíla undir lögreglumenn svo erfiðlega gengur að stinga þá af þá sjaldan að maður fær sér í glas. Svona er þetta bara og ef ég er ósáttur við að greiða skatta um hver mánaðarmót þá er það af því að ég hef gleymt þeim fjárhæðum sem ég hef fengið í gegnum tíðina sem ekki allir fá. Barnabætur, atvinnuleysisbætur, háskólanám og heilt skurðlæknateymi í fleiri klukkutíma.

Fólk fær gefins pening reglulega og ég er ekkert sérstaklega pirraður yfir því að nú er komið að fasteignaeigendum sem runnu á rassgatið.

En það sem pirrar mig óstjórnlega í þessu leiðréttingarmáli öllu saman er pakkið sem sótti um án þess að þurfa þess.

Svona fólk sem þarf ekkert á neinni leiðréttingu að halda en sér easy money og grípur þá bara. Það er allt í bál og brand í samfélaginu, verkföll og peningaskortur allstaðar. Þá mætir maður ekkert og lætur ríkissjóð niðurgreiða fyrir sig næstu utanlandsferð.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283