Samantha Hess er atvinnuknúsari og býr í Portland í Bandaríkjunum. Nýverið opnaði hún knús- og kelstofu en þar tekur hún á móti viðskiptavinum, heldur utan um þá og knúsar. Fyrir atlotin borgar fólk 60 pund fyrir klukkustundina. Þar ná viðskiptavinir að sögn Samönthu: „Mannlegri nánd sem gerir okkur auðveldara að vera við sjálf.“
Fyrirtæki Samönthu sem hún kallar Cuddle up to me eða Kúrðu hjá mér, blómstrar og hún hefur ekki undan við að sinna eftirspurn knússækinna viðskiptavina.
Hvert skipti er klukkustund en þar býður Samantha m.a. upp á hárstrokur, handgælur, faðmlög og ýmsar knússtellingar. Samantha segir að þjónustan sé á engan hátt kynferðisleg og að hugmyndin hafi kviknað þegar hún sjálf gekk í gegnum erfiðar stundir í lífi sínu.