Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Safn hinnar líðandi stundar – Uppboð Nýlistasafnsins er í dag!

$
0
0

Kvennablaðið vill benda lesendum á uppboð Nýlistasafnsins sem fer fram í dag 23. nóvember í Safnahúsinu Hverfisgötu 15. Uppboðið hefst klukkan 14.00. Þau verk sem eru á uppboðinu má skoða hér.

Hér birtum við grein Þorgerðar Ólafsdóttur sem er formaður Nýlistasafnsins.

10612953_10152285753499290_6487515204620122770_n

 

Safn hinnar líðandi stundar

Það er orðið að árstíðabundinni venju með lækkandi sól að listasenan í heild sinni þurfi að endurtaka hver ávinningur sé fyrir samfélagið af list. Í þessu samhengi er langoftast átt við efnahagslegan ávinning, enda veit jafnvel sitjandi ríkisstjórn að raunverulegt gildi menningar er ómetanlegt. Ef maður vill draga fram peningapunktinn er hægt að benda á að með hverri krónu sem sett er í menningu koma fimm tilbaka. Staðreyndin er sú að íslenskt samfélag er í raun ofdekrað af endalausum tækifærum til þess að njóta listar vegna framtaks og takmarkalausrar vinnu listafólks í gegnum tíðina. Að ræða raunverulegt gildi lista á sér mun stærri og lengri sögu sem er órjúfanlegur hluti af ímynd okkar sem menningarsamfélags.

Jafnvel þótt við lítum 100 ár aftur í tímann er augljóst að íslenska listasenan er mestmegnis sköpuð af listamönnum og oftar en ekki í sjálfboðavinnu. Árið 1916 var hornsteinn lagður að kastala og listasafni Einars Jónssonar efst á Skólavörðuholtinu. Árið 1947 var Myndlistarskóli Reykjavíkur stofnaður en hann hefur verið rekinn af listamönnum óslitið síðan og árið 1965 var gallerí SÚM komið á legg af hópi listamanna.

5. janúar árið 1978 komu 26 listamenn saman í vinnustofu Ólafs Lárussonar listamanns og lögðu drög að stofnun listasafns sem tileinkað yrði samtímalist. Stefna sem opinberar listastofnanir voru ekki að sinna á þeim tíma. Þannig varð Nýlistasafnið eða Nýló til, fyrst til húsa í 30 m2 geymslu í Mjölnisholti. Tæpum tveimur árum seinna var sýningarrými Nýló komið á koppinn á jarðhæð Vatnsstígs 3b. Síðan þá hafa yfir 60 listamannarekin rými, sem loguðu glatt á meðan á þeim stóð, opnað og lokað á höfuðborgarsvæðinu einu saman.

Listaverkaeign Nýló er í dag yfir 2.000 verk og byggist einvörðungu á gjöfum listamanna. Fjöldi þessara verka hefðu án efa glatast ef listamennirnir hefðu ekki komið saman til þess að varðveita eigin sögu. Heimildasafn um frumkvæði listamanna er einmitt að finna í Nýló, sem og heimildasafn gjörninga sem fluttir hafa verið í safninu síðustu áratugi. Nýló er og hefur verið safn og sýningarými hinnar líðandi stundar og geymir einstæðan hlut íslenskrar listasögu frá því um 1960.

Fyrsta minning mín af Nýlistasafninu var þegar ég rambaði óvart inn á gjörningakvöld á Vatnsstígnum eftir bjórkvöld í Kvennó. Nokkru seinna var Nýló komið á Laugaveg 26 og við nokkrir nemendur í Listaháskólanum fórum á opnun sýningar Kolbeins Huga þar sem hann, þá nýútskrifaður frá LHÍ, hafði umbreytt sýningarrými safnsins í stríðskotasvæði; samsuðu tónlistar og barmenningar Reykjavíkur. Stuttu seinna mætti ég aftur, þá hafði Nýló misst geymsluplássið fyrir safneignina og fékk hana í heild aftur til sín, eða í hausinn, eftir því hvernig á það er litið. Þáverandi stjórn hafði ásamt myndlistarmanninum Carl Boutard, þakið allan gólfflötinn á Laugaveginum með innpökkuðu verkunum og lagt gönguplanka yfir safneignina svo gestir gátu gengið yfir söguna. Þremur árum seinna, eftir útskrift frá myndlist í LHÍ var mér ásamt nokkrum ungum myndlistarmönnum boðið að velja verk úr safneign Nýló sem þá var komið á Skúlagötuna. Þá fyrst opnuðust augu mín fyrir umfangi og mikilvægi Nýló þar sem ég skrollaði í gegnum rúmlega 1000 verk og heimildir frá fyrri sýningum í safninu. Mörg verkanna hafði ég aldrei séð áður en sum hver voru afar kunnugleg og komu við innsta hjartastreng.

Eins og mörgum er kunnugt flutti Nýló nýverið safneign sína í Breiðholtið. En leitin að hentugu sýningarrými  stendur hinsvegar enn yfir. Nú hafa margir af stofnendum og fulltrúum Nýló ásamt nokkrum heimsþekktum listamönnum, gefið safninu listaverk á fjáröflun til þess að tryggja varanlegri aðstöðu fyrir sýningarstarfsemina.

Þannig hefur Nýló verið keyrt áfram gegnum tíðina, með stöðugri vinnu og framtaki listamanna sem er einmitt ástæðan fyrir því að þetta tiltekna listamannarekna rými hefur ekki enn kulnað út eins og öll hin. En Nýló er ekki sjálfsagður hlutur frekar en nokkuð annað og staðreyndin er sú að það er komið að ákveðnum kaflaskilum í sögu sýningarrýmis safnsins.

Hvað gerist ef að Nýló fær ekki almennilegt sýningarrými sem hæfir hugsjónum og kröftum þess? Þetta tiltekna rými sem hefur haft gríðarlega mótandi áhrif á myndlistarsenuna og næstu kynslóðir listamanna í nær fjóra áratugi. Þetta fjáröflunarframtak er því afar mikilvægt. Ekki bara fyrir listamenn eða Nýló, heldur fyrir samfélagið á Íslandi.

Aðstandendur Nýlistasafnsins hvetja alla til þess að mæta á sunnudaginn klukkan 14:00 í Safnahúsið, Hverfisgötu 15, til að fjárfesta í myndlist og um leið í áframhaldandi tækifærum til þess að njóta listar á Íslandi.

http://www.nylo.is/uppbod/

 

Ljósmynd af Verki Hallgríms Helgasonar, Couple.

Þorgerður Ólafsdóttir (f. 1985) útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands vorið 2009 og stundaði í kjölfarið nám í ritlist og listfræði við Háskóla Íslands. Vorið 2013 lauk Þorgerður meistaranámi í myndlist frá Glasgow School of Art. Hún tók við sem framkvæmdastjóri Nýló sumarið sama ár og var kosin formaður Nýlistasafnsins síðastliðinn mars á ársfundi fulltrúaráðs safnsins. Á stuttum starfsferli hefur Þorgerður sýnt verk sín víðsvegar hér heima, í Bretlandi og Norðurlöndunum ásamt því að hafa farið fyrir listamannareknum rýmum, útgáfum listamanna og sýningarverkefnum eins og Sequences Myndlistarhátíð og nú nýlega Staðir / Places á Vestfjörðum ásamt Evu Ísleifsdóttur. Þorgerður situr í stjórn Listahátíðar í Reykjavík og Sequences Myndlistarhátíðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283