Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Undir niðri á Ásvallagötunni

$
0
0

Ég bý á Ásvallagötunni og þótt gatan sé frekar róleg og lítið um hamagang er ýmislegt að gerast. Um daginn var t.d. tekin upp auglýsing fyrir þýskan banka í þarnæsta húsi við mig.  Þetta var mikil „pródúksjón“ og íbúarnir beðnir um að færa bíla sína frá götunni til að rýma fyrir tækjum frá kvikmyndafyrirtækinu sem var að gera auglýsinguna. Þetta var frekar auðfengið. Það var settur miði inn um lúguna með öllum upplýsingum. Og viti menn – allir tóku vel í þetta og það var bara einn bíll sem stóð eins og Þrándur í Götu. Ég geri ráð fyrir að ekki hafi náðst í eigandann.

Ég átti svo erindi í bæinn og hitti fólk sem var að vinna við risastóran eldhúsbíl sem vakti athygli mína. Ég spjallaði við kokkinn og hann sagði mér frá þessu í fáum orðum. Svo var hann svo sætur að hann sýndi mér „veitingahús-attanívagninn“ sem fylgdi með eldhúsbílnum. Þá var ég hissa. Eiginlega alveg „stúmm“.

Hverni skyldi gruna að í þessar langflutningabifreið leynist fínasta eldhús

Hverni skyldi gruna að í þessar langflutningabifreið leynist fínasta eldhús

Þessi attaní vagn leynir á sér

Þessi attaní vagn leynir á sér

„Þarna

Inn í attaní-vagninum leynist hinn ágætasti „diner“ – Hvern hefði grunað það

Þetta var sem sagt fyrirtaks-veitingahús-vagn sem var innréttaður á smekklegan hátt. Svo var hann barasta dreginn á eftir eldhúsbílnum. Mig minnir að ég hafi átt svona Playmobil-dót þegar ég var 10 ára.

Nokkrum dögum áður hafði ég rekist á nokkra snillinga sem voru að stússast í kringum ótrúlega flott reiðhjól sem var úr tré. Þar sem ég er áhugamaður um hjólreiðar hvers konar vakti tréhjólið auðvitað áhuga minn. Þeir leyfðu mér að smella af nokkrum myndum. Nánari upplýsingar um tréhjólið er á thewoodbike.com.  Hjólasmiðurinn Allessandro var hinn ljúfasti og hjólið hans var stórkostlegt. Flottur gripur og einstakur.

Snillingar við tréhjól

Snillingar við tréhjól

IMG_20141109_160014

Eðalviður og fyrsta flokks aukahlutir

IMG_20141109_160019

Engar skrúfur heldur geirnegling. Virkilega flott smíði

 

-Svona er Ásvallagatan stundum skemmtileg. …

Nei … Afsakið …

Allar götur eru skemmtilegar. Maður þarf bara að gefa þeim gaum.

 

-Þá opnast allt.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283