Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heklfélagið – samvinna margra kvenna

$
0
0

Út er komin handavinnubók sem heitir Heklfélagið og er með nýjum og frumlegum hekluppskriftum sem Tinna Þórudóttir Þorvaldar ritstýrði og er jafnframt höfundur að ásamt 14 öðrum hönnuðum. Tinna hefur áður vakið mikla athygli fyrir bækur sínar, Þóru heklbók og Maríu heklbók.

Heklfelagid

Í Heklfélaginu eru uppskriftir að fjölbreyttum verkefnum eins og flíkum á börn og fullorðna, teppum, leikföngum og dúkum. Í bókinni eru einnig ítarlegar heklleiðbeiningar, gagnlegar upplýsingar um garn og garntegundir og sérstakir kennslukaflar í amigurumi-hekli og kaðlahekli.

Tinna sagði Kvennablaðinu ofurlítið frá bókinni, tilurð hennar og uppgötvunum þeim sem hún gerði á leiðinni:

„Hannyrðir brúa bilið bæði milli kynslóða og ólíkra samfélagshópa. Ég hef kynnst þvílíkt mörgum frábærum konum í gegnum heklið sem ég hefði annars áreiðanlega aldrei hitt. Með hannyrðunum myndast tengsl sem eru þverfélagsleg. Konur geta verið af ólíkum stigum og stéttum þjóðfélagsins, á ólíkum aldri, með ólíka menntun eða menntunarstig og hverskyns bakgrunn, en ef báðar hafa heklunál í hönd þá er komin tenging og spjallið rúllar svo af sjálfu sér. Þessi tenging verður meðal annars til á hannyrðanámskeiðum, á kaffihúsum, í eldhúsum hjá nágrönnum, og svo ekki síst á samskiptamiðlum á netinu.

Það er hrein unun að fylgjast með samvinnunni og samhjálpinni sem á sér stað í hannyrðahópunum á netinu, þar sem fólk þekkist ekki fyrirfram, en allir eru til í að hjálpa öllum og miðla af reynslu sinni. Þetta eru dýrmæt tengsl, sérstaklega í litlu samfélagi einsog á Íslandi.

Í þessari bók fór ég aðra leið en í fyrri bókum mínum, nú er ég ritstjóri og fékk til liðs við mig 14 aðra íslenska heklhönnuði. Einmitt með þessa samvinnu og hannyrðatengsl í huga þá fékk ég þá hugmynd að búa til íslenska heklbók sem væri safnbók með uppskriftum eftir marga höfunda.

Heklfelagidbls127

 

Það er mikil gróska í hekli um þessar mundir og því fullt af flottum konum að gera flotta hluti. Ég sá því í hendi mér að með samvinnuna að vopni gæti ég auðveldlega safnað saman góðum hóp kvenna og gert samstöðu heklbók með úrvali af uppskriftum eftir okkur allar. Eins konar Sjónabók í íslensku samtímahekli, með flottri hönnun og uppskriftum, þar sem þessi gróska kemst upp á yfirborðið, á prent og út til fleiri heklara.

Heklfelagidbls49

Með það fór ég af stað og hafði samband við alla þá frábærlega flottu heklara sem ég þekki og vissi að væru að gera eigin uppskriftir og vinna að alls kyns hönnun í heklinu. Úr varð þessi dásemdarbók, sem ég er gríðarlega stolt af.

Heklfelagidbls139

 

Hér gefur að líta fullt af nýrri tækni, bæði í amigurumi og kaðlahekli, og svo 30 nýjar flottar upprunalegar uppskriftir og hönnun sem, eðli málsins samkvæmt, eru dásamlega fjölbreyttar og skemmtilegar. Enda er hér skemmtilegur og fjölbreyttur hópur heklara á ferð.

Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi í Heklfélaginu, hvort sem er dúkar og hekl til heimilisins, barnaflíkur, teppi eða tuskudýr. Þar að auki eru 5 fullorðins kvenmannspeysur í bókinni, en það er oft talað um að það sé ekki hægt að hekla fallegar flíkur. Hér með er það afsannað, því þær eru ótrúlega klæðilegar og hver annari flottari!

Heklfelagidbls179

Svo er það besta, við unnum þetta saman. Það er ótrúlegt hvað kona lærir mikið á samvinnu. Hingað til hef ég persónulega lært mest í heklinu á því að kenna, en nú er ég á því að samvinna sé jafnvel enn betri skóli. Að fara yfir allar þessar uppskriftir og læra nýja tækni og aðferðir, ekki bara í heklinu sjálfu heldur einnig í uppskriftarskrifum, er búin að vera alveg frábær reynsla. Og nú þegar bókin er tilbúin er ég uppfull af allskonar hugmyndum og sköpunargleði og hef þroskast þvílíkt í mínu hekli. Það eru því algjör forréttindi að fá að taka þátt í svona samvinnu og ég hvet alla heklara til að prófa það.

Ég segi því lifi samvinnan og sköpunargleðin!

Áfram við og heklum saman!“

Við báðum Tinnu að deila uppskrift úr þessari fallegu bók með lesendum Kvennablaðsins og það reyndis auðsótt mál. Þetta krukkuhekl er fallegt og ætti að vera á færi flestra. Uppskriftina má finna hér.

Heklfelagid1

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283