Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Play it again, Sam – um mátt endurtekningarinnar

$
0
0

Fáum hátíðum fylgja jafnmargar hefðir og siðir og jólum. Meira að segja mataræðið er hefðbundið og skipulagt niður í smæstu atriði.

“Hvað hafið þið í jólamatinn?” er algeng spurning, því að sérstakir matseðlar og sérstakar uppskriftir ganga í erfðir hjá fjölskyldum og margir ættliðir setjast mann fram af manni að rjúpum sem eru eldaðar eftir sömu uppskrift og langamma skrifaði upp eftir vinkonu sinni á Húsmæðraskólanum sem hafði hann upp úr danska tímaritinu Familie Journal árið 1923 – og kannski er farið eftir ennþá eldri hangiketsuppskrifum.

Ákveðin smákökutegund þarf að vera á ákveðnum silfurdiski á ákveðnum stað á ákveðnum jólalöber. Hangiketið þarf að vera frá ákveðnum bæ í ákveðinni sveit í ákveðinni sýslu í ákveðnum landshluta. Uppskriftin að möndlugrautnum, uppskriftin að fyllingunni í jólagæsina, að hafa (eða hafa ekki) kúmen í laufabrauðinu, að hlusta (eða hlusta ekki á jólamessuna í Ríkisútvarpinu), að setjast að borðum á ákveðnu augnabliki, að borða ákveðna súpu í forrétt, og ótal margt fleira eru ómissandi jólavenjur í ótal fjölskyldum og jólatréð fær maður á ákveðnum stað og flugeldana fyrir gamlárskvöld kaupir maður hjá sama aðila.

Hefðum og siðum fylgir ákveðin festa, ákveðið öryggi í veröld sem er vægast sagt ótrygg, óútreiknanleg og breytileg veröld þar sem allt getur gerst, allt líður hjá og ekkert varir að eilífu, þannig að um jólin leitum við friðar og öryggis ekki bara í boðskap jólanna þau okkar sem eru svo heppin að geta á hann trúað heldur líka í því að búa okkur til mjúkt hreiður úr siðvenjum og hefðum sem gefa til kynna að þrátt fyrir að veröldin steypi stömpum og allt sé á hverfanda hveli séu jólin alltaf eins og óumbreytanleg eins og við vildum kannski vera og erum innst inni friðsöm, kærleiksrík og full af velvilja til alls sem lífsanda dregur?

Play it again, Sam, (spilaðu það aftur, Sammi), er frægasta setning kvikmyndasögunnar og fjallar um endurtekningu og upprifjun á ást og fegurð sem aldrei deyr.

Það er tiltölulega stutt síðan þjóðfélag okkar losnaði úr aldalangri fátækt og komst til þokkalegrar velmegunar þannig að við erum sem þjóð ekkert sérstakleg rík að hefðum og siðum og fyrir bragðið verða þær siðvenjur sem við eigum ennþá dýrmætari og við ættum að fara varlega í þann kjánaskap að halda að við getum endalaust hlaupið á eftir og bætt við okkur skemmtilegum jóla- eða hátíðasiðum og serimóníum frá öðrum löndum og sótt þær eftir hendinni eins og öpp í ipod.

Hollur er heimafenginn baggi og allt það.

(Svo að alvitringarnir vinir mínir fari ekki á límingunum yfir því að hér skuli vera farið rangt með frægustu setningu kvikmyndasögunnar skal tekið fram að mér er vel ljóst að Bogie segir aldrei “Play it again, Sam,” í kvikmyndinni Casablanca – en það er önnur saga).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283