Ninna Þórðardóttir er hönnuður og myndskreytir. Hún er fædd og uppalin á Akureyri. Hönnunarvörur eftir Ninnu eru seldar í versluninni Fóu á Laugavegi 2, 101 Reykjavík og margar þeirra eru tilvaldar til skemmtilegra og óvanalegra jólagjafa.
Clik here to view.

Viskastykki með hvalamynstri eftir Ninnu
Ninna útskrifaðist með BA í hönnun frá Design Academy Eindhoven árið 2006. Núna býr hún í Gautaborg, Svíþjóð og er að læra MA í Child Culture Design.
Ninna sérhæfir sig í myndskreytingum, munstrum og leikfangahönnun. Hún notast oft við hljóð og hreyfingu í verkefnum sínum, verkin hennar eru full af lífi, litum og sögu.
Clik here to view.

Handklæði eftir Ninnu.
Ninna er með einkennandi stíl sem sést greinilega í verkum hennar hvort sem það er vídeó, teikning eða hönnun. Verk hennar eru oft tilraunakennd og hún nýtur þess að ýta á mörk hins eðlilega.
Clik here to view.

Töskurnar hennar Ninnu.
Húmorinn er einnig aldrei fjarri vegu í verkum hennar. Mörg hennar verk eru samblanda af furðulegum hlutum með krúttlegu ívafi.
Clik here to view.

Handklæði eftir Ninnu.
Hönnun Ninnu er á mjög fínu verði og tilvalin til gjafa. Handklæði kosta 4490/- Töskur kosta 2490/- og
Viskastykkin eru á 2790/-.
Clik here to view.

Viskastykki eftir Ninnu.