Í dag þriðjudaginn 30. desember kl. 16:00 verður fluttur í Iðnó fyrirlestur eftir Bríeti Bjarnhéðinsdóttur sem ber heitið „Fyrirlestur um hagi og réttindi kvenna“. Bríet flutti þennan fyrirlestur þann 30.desember árið 1887 í Góðtemplarahúsinu og var það fyrsti opinberi fyrirlestur kvenmanns á Íslandi. Einungis er um að ræða þetta eina skipti.
Fyrirlesturinn er upptakturinn að afmælisári kosningaréttar- og kjörgengis kvenna árið 2015.
Aðgangseyrir er kr. 2.500. – Innifalið í verði er kaffi og randalína að loknum fyrirlestri sem tekur u.þ.b. 1 klst. Miðasala er í Iðnó, sími 562-9700, idno@idno.is eða á midi.is
Það er afmælisnefnd 100 ára kosningaréttar kvenna sem gerir það kleift að flytja fyrirlesturinn en nefndin var sett á stofn að tilhlutan Alþingis. Formaður nefndarinnar er Auður Styrkársdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Þeir sem fram koma eru:
Hera Hilmarsdóttir
Þórey Sigþórsdóttir
Saga Garðarsdóttir
Þórunn Lárusdóttir
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
Jórunn Sigurðardóttir
Sólveig Pálsdóttir
Jakob Þór Einarsson
Samsöngur barna og flytjenda: Jóhanna Halldórsdóttir
Hár og förðun: Kristín B. Thors
Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir
Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir





