Lærðu að hnýta hálstau!
Það vefst fyrir mörgum að binda fallegt hálstau eða þverslaufur. Þetta myndband leiðir þig í gegnum það í eitt skipti fyrir öll. Þú verður aldrei framar í neinum vafa um það hvernig þetta er gert!
Þverslaufur klæða ekki alla og er þetta tekið fram til að forðast það að Kvennablaðið verði gert ábyrgt fyrir tískuslysum.
Hálstau eru í tísku meðal karlmanna svo það er bráðnauðsynlegt að kunna þetta vilji maður teljast maður með mönnum!