Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Íslenskir teiknarar #CharlieHebdo

Teiknararnir Þórir Karl Bragason Celin og Lára Garðarsdóttir hafa bæði teiknað myndir til að sýna samstöðu með kollegum sínum sem létust á ritstjórnarskrifstofu skopmyndatímaritsins Charlie Hebdo.

Við töluðum örstutt við Láru og Þóri og spurðum þau hvað þeim væri efst í huga eftir þessa hræðilegu atburði.

Lára: Efst í huga mér er sorg og reiði. Þetta var ekki árás á eitt blað í annarri borg heldur öll skrif í öllum löndum. Mál- og tjáningarfrelsið eru mikilvægustu mannréttindin.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Þórir Karl Bragason Celin.

Þórir Karl Bragason Celin.

Þórir:  Ætli það sé ekki sú undarlega tilfinning að það geti verið hættulegt að teikna.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Teikning eftir Þóri Karl Bragason Celin

Teikning eftir Þóri Karl Bragason Celin

Finnst ykkur ástæða til að íslenskir teiknarar láti meira til sín taka í þjóðmálaumræðunni?

Lára: Já algjörlega! En það eru margar hliðar á málinu, við á Íslandi erum oft hrædd við að rugga bátnum og í alþjóðamálum sem slíkum enn heftari, sbr. afstöðu fjölmiðla að birta ekki Múhammeð-teikningarnar sem birtust í Jyllands-posten árið 2006. Þetta er ekki spurning um hverrar skoðanir við erum heldur að leyfa frjálsa umræðu og geta tekið því sem sagt er án þess að einhver sé hengdur.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Teikning eftir Láru Garðarsdóttur

Teikning eftir Láru Garðarsdóttur

Er þessi skelfilegi atburður ekki einmitt áminning um það hversu mikil áhrif listamenn geta haft með verkum sínum?

Þórir: Jú, listamenn hafa alltaf haft áhrif, satíran er oft ef ekki yfirleitt kraftmikið vopn.

 

Mynd efst í grein er eftir Láru #CharlieHebdo


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283