Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lækningamáttur kannabisolíunnar

$
0
0

Fyrirlesarinn, rithöfundurinn og kannabisolíufrumkvöðulinn Rick Simpson er þekktur víða um heim fyrir að deila þekkingu sinni og reynslu af lækningamætti kannabisolíu. Sjálfur missti Rick heilsuna til krabbameins og fékk litla sem enga lausn sinna mála í gegnum þær leiðir sem vestrænar lækningar buðu upp á. Hann hóf tilraunir með kannabisolíu til að lina þjáningar sínar og endaði á því að endurheimta góða heilsu með hjálp þessarar olíu. Síðan þá hefur Rick varið öllum sínum tíma í að miðla reynslu sinni og hjálpa öðrum að endurheimta heilbrigði. Batasögurnar skipta nú þúsundum og eru frá öllum heimshornum.

rick 1

 

Hingað er hann svo kominn til að deila reynslu sinni með Íslendingum til að miðla áfram því sem hann hefur fengið. Reynsla hans og þekking eru ómetanleg þegar kemur að því að meta möguleika kannabis til lækninga á krabbameini (og öðrum sjúkdómum). Fyrirlesturinn og áframhaldandi umræða um lækningamátt kannabisolíu stuðla vonandi að ítarlegri rannsóknum á virkni olíunnar. Nú þegar er fjöldinn allur til af mjög góðum heimildum sem sýna jákvæða læknisfræðilega eiginleika kannabisolíunnar og annarra hluta plöntunnar.

RICK-SIMPSON-01

Frekari upplýsingar um Rick Simpson er að finna hér:

 

Fyrirlesturinn „Lækningamáttur kanabisolíunnar“ hefst kl 13.00, sunnudaginn 22. febrúar í Skriðusal Háskóla Íslands við Stakkahlíð (gamli kennaraháskólinn)
og er aðgangseyrir 1.000 kr.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283