Fiskur er í miklu uppáhaldi hjá okkur í fjölskyldunni. Það er ekki bara að okkur finnist fiskur góður. Rúnar, maðurinn minn, er í fiskunum, starfar í fiski og þar af leiðandi er mikið talað um fisk á heimilinu. Auk þess er tími fisksins núna. Er þetta ekki akkúrat tími fyrir fiskuppskrift? Einhverjum kann að þykja þessi samsetning skrítin, passi ekki saman og allt of mikið af karrýi. En trúið mér, þetta er ótrúlega góður réttur, sem eldaður er bæði hversdags og spari hjá okkur.
Uppskriftir
Þó svo að ég gefi upp gróft spelt, brún egg og maldon salt er að sjálfsögðu hægt að nota hvaða mjöl, egg og salt sem er.
Innihald:
- 200–250 g af þorskhnökkum á mann
- ½–1 banani á mann
- 1 stk. laukur á mann
- 1 bolli gróft spelt
- 2–3 stk. brún egg
- Karrý
- Maldon-salt
- Pipar
- Smjör
- Olía
- Hýðishrísgrjón
Hefjumst þá handa.
Byrjið á að steikja laukinn og sjóða hýðishrísgrjónin. Það tekur lengsta tímann. Hjá mér rétt dugir að hafa einn lauk á mann. En þið þekkið ykkar heimafólk með magn.
Aðferð:
- Flysjið laukinn og skerið hann í tvennt og síðan í þunnar sneiðar.
- Setjið 50 g smjör (fyrir þrjá lauka) og 1 msk. af olíu og 2 tsk. karrý á pönnu eða í pott.
- Stillið helluna á lágan hita. Hjá mér eru sex stillingar og ég stilli á einn.
- Hrærið smjörinu, olíunni og karrýinu saman, þar til að smjörið er bráðið og karrýið aðeins farið að brúnast.
- Bætið lauknum út í og leyfið honum að malla á pönnunni í 50 mínútur þá verður hann fullkominn.
- Hrærið í öðru hverju.
- Sjóðið hýðishrísgrjónin eftir leiðbeiningum á umbúðunum.
Á meðan laukurinn kraumar á pönnunni og hýðishrísgrjónin sjóða í pottinum er fiskurinn, bananarnir og sósan útbúin.
Næst eru það þorskhnakkarnir.
Aðferð:
- Skerið þorskhnakkana í hæfilega stóra bita. Hver biti hjá mér er 8 – 10 cm.
- 1 bolli gróft spelt sett í skál.
- 2 stk. egg sett í aðra skál, 1 tsk. salt og pipar hrært saman með gaffli.
- 100 g smjör, 2 msk. olía og 3 tsk. karrý sett á pönnuna og brætt.
- Hitinn á eldavélarhellunni stillt á 2 hjá mér.
- Veltið fiskinum fyrst upp úr egginu og síðan upp úr speltinu.
- Setjið fiskinn á pönnuna og steikið í ca þrjár–fjórar mínútur á hvorri hlið.
- Gætið þess að snúa fiskinum ekki of fljótt því þá fer speltið af honum.
Það er eins með bananana og laukinn. Einn banani á mann rétt dugir fyrir mína fjölskyldu.
Síðast eru bananarnir steiktir. Notið sömu pönnu og laukurinn var steiktur á, þá kemur smá laukbragð af bönunum.
Aðferð:
- Skerið bananann í tvennt og síðan eftir endilöngu
- Ca 50 g smjör + 1 msk. olía og 1 msk. karrý sett á pönnuna og brætt saman við lágan hita.
- Bananarnir steiktir þar til þeir eru eins og á myndinni hér til hægri.
Köld karrýsósa
Fyrir þá sem vilja kalda karrýsósu tekur aðeins eina mínútu að gera þessa.
Innihald:
- 1 dós sýrður rjómi.
- Ég nota 10%.
- 1 msk. karrý.
- 1 msk. lífrænt hunang.
- 1–2 tsk lífrænt sinnep.
- Maldon-salt og pipar.
Aðferð:
- Allt hráefnið sett í skál og hrært saman.
Verði ykkur að góðu og njótið.