Nakinn maður sást yfirgefa Buckinghamhöll í gær. Af myndbandinu að dæma sígur hann niður í samanbundnum lökum. Ekki er vitað hvern maðurinn var að heimsækja, hvaða erindi hann átti í höllina eða hvers vegna hann yfirgaf höllina á þennan óvenjulega hátt. Fjölmargir ferðamenn virðast hafa ná myndum af strípalingnum en samkvæmt breskum blöðum verst konungsfjölskyldan allra frétta.
↧