Eftirtaldar leikkonur keppa nú um titilinn besta leikkona í aðalhlutverki en óskarsverðlaunatilnefningar voru tilkynntar fyrir stuttu.
Amy Adams fyrir leik sinn í kvikmyndinni, American Hustle.
Kvikmyndin er einnig tilnefnd til verðlauna í flokki bestu kvikmynda.
Cate Blanchett fyrir leik sinn í kvikmyndinni Blue Jasmine.
Sandra Bullock fyrir leik sinn í kvikmyndinni Gravity.
Judi Dench fyrir leik sinn í kvikmyndinni Philomena sem einnig er tilnefnd sem besta kvikmyndin.
Hér má hlusta á magnað útvarpsviðtal við hina raunverulegu Philomenu.
Meryl Streep fyrir leik sinn í kvikmyndinni August: Osage County