Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir leit í spegil

$
0
0

Ég verð stundum steinhissa þegar ég horfi í spegil og hugsa – ég hefði ekki átt að hlæja svona mikið, þá væru ekki allar þessar broshrukkur, en snemma var mér bent á að það að vera með broshrukkur væri kostur, „það sýnir, Silla mín, að lífið hefur að einhverju leyti leikið við þig“.

Ég horfi á mig og veit auðvitað að ég hef breyst heilmikið í gegnum árin og ég er hætt að mála mig í anda Ninu Hagen og svarti varaliturinn er löngu týndur (sem betur fer), en ælænerinn er svosem aldrei langt undan og enn vil ég hafa hann svartan.

En klisja eða ekki klisja, ég er svo glöð yfir því að ég er að eldast og þroskast, og ég er sérlega glöð yfir því að hafa ekki áhyggjur af aldrinum, það gerir mann, held ég, bara óhamingjusaman.

Ég horfi í spegil og hugsa, ég er amma Silla, ætli honum Rökkva mínum finnist ég með mjúkar kinnar eins og mér þóttu kinnar ömmu Sillu? Hann strýkur þær stundum og segir amma í einhverjum tón sem fær mig til að fá kökk í hálsinn og ég hugsa – það sem er gott að eldast!

Ég lít sjaldan undan þegar ég horfi í spegil (ég tek því bara sem að höndum ber!) en þegar það gerist skvetti ég á mig köldu vatni og maka einhverju ægilega fínu kremi í andlitið á mér, set á mig ælæner og hugsa … þetta verður ekki betra, en svo er reyndar líka hægt að setja á sig stóra húfu, þá horfa allir á höfuðfatið og enginn á þreytt andlit.

25 ára gömul fann ég fyrsta gráa hárið og þótti það aldeilis ekki sniðugt, gróf upp kolsvartan háralit (mjög ódýran og lélegan) og makaði honum í hárið á mér og varð alsæl, horfði alvarleg í spegilinn og sagði stundarhátt: „Nú líkist ég Björgu frænku.“

Pabbi horfði með skelfingu á mig en sagði ekki neitt, sem betur fer kannski, því þarna fór af stað sérlega skemmtilegur tími í mínu lífi þar sem ég litaði hárið svart, grænt og meira að segja fjólublátt.

En semsagt, gráu hárin koma mér í uppnám og þegar þau sýna sig fer ég í „leiðréttingu“ og verð alsæl á eftir, horfi djúpt í augun á fólki og segi: „Nei nei nei, ég lita aldrei á mér hárið!“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images