Ef ykkur langar í smá gott trít um helgina mæli ég með þessum molum. Þetta er fitubomba en 1–2 molar eru nóg til að róa niður sykurtryllta púkann innra með okkur. Það er frábært að eiga þessa mola í kælinum þegar sykurpúkinn fer að öskra.
Snickersmolar
-50 g smjör
-1 dl rjómi
-1 msk. Sukrin gold
-10 dropar karamellu-stevía
-1–2 msk. hnetusmjör
-30 g saxaðar hnetur
-sykurlaust súkkulaði til að bræða
Smjör, rjómi, sukrin og stevía sett í pott og hrært í. Þegar suðan kemur upp er stillt á lægsta hita og leyft að malla í 20–30 mínútur. Hrærið í á 10 mínútna fresti. Passið að hræra ekki of mikið því þá er hætta á að karamellan skili sig.
Þegar karamellan er búin að malla í 20–30 mínútur er hnetusmjöri bætt út í. Því næst hnetur og blandað vel við karamellluna. Setjið í silikonform og inn í frysti í 1–1,5 klst. eftir þvíhversu þykk hún er hjá ykkur. Þegar karamellan er orðin köld, bræðið súkkulaði og dreifið yfir ásamt örlitlu af grófu salti. Skerið í litla munnbita og geymið í lokuðu íláti í kæli.







