Meryl Streep sú dáða leikkona var gestur í spjallþætti Ellen DeGeneres í gær þar sem Ellen lagði nokkrar leiklistarþrautir fyrir Meryl.
Sú fyrsta var að gæða hafragrautsuppskrift kynþokka, önnur þraut var að lesa umferðarfréttir eins og kona í miðri barnsfæðingu. Þriðja þrautin og sú síðasta var að lesa texta upp úr Wikipediu eins og pirraður unglingur. Meryl gerði þetta vitanlega allt listavel.
↧
Meryl Streep og kynþokkafulla hafragrautsuppskriftin
↧