Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kynlíf selur og það veit R. Kelly

$
0
0

„Kveikjan að þessum skrifum var sú að ég sá plötuumslagið á nýju plötunni hans R. Kelly. Ég vorkenndi honum að vera með svo mikla minnimáttarkennd að hann þyrði ekki að pósa einn á henni. Hann þurfti 20 naktar konur til að gera plötuna áhugaverða. Af hreinni meðaumkun byrjaði ég að lesa lagatitlana hans. Titlar eins og „Legs shakin“, „Show ya pussy“, „Marry that pussy“, „Tear it up“, „Crazy sex“, staðfesta að herra Kelly skilur að KYNLÍF SELUR. Þessi plata er frumlegt og markaðsvænt sköpunarverk. Þar sem að hann er dásamlegur listamaður vil ég deila með ykkur hvað nokkur af þessum lögum fjalla um. Njótið!“

Tilvitnunin hér að ofan er þýðing á Facebook status Lovisu Ternby ,sem tók sig til og skrifaði heilmikla og óvenjulega úttekt á nýjustu plötu tónlistarmannsins R. Kelly sem ber titilinn, Black Panties eða Svörtu nærbuxurnar. Aðalheiður Rósa Jóhannsdóttir, læknir í Gautaborg, tók sig til og þýddi greinina lauslega og birtir á bloggi sínu. Við birtum þýðinguna hér með góðfúslegu leyfi Aðalheiðar. En við skulum þá gefa Lovísu orðið og sjá greiningu hennar á meistaraverki R. Kelly sem hún þaulskoðar lag fyrir lag.

Legs shakin´
Í þessu lagi syngur R. Kelly um það hvernig best sé að fá fætur stúlkna til að nötra. það er ef hún hagar sér rétt. Síðan ætlar hann að stinga sér til sunds í henni. Fá sér dýfu. Já, og alveg rétt, hann vill koma því á framfæri hvað hann er heillaður af því á hve marga vegu er hægt að fetta, bretta og snúa stúlkum, (þær eru frá annarri plánetu en karlmenn, ótrúlegt!)

Herra Kelly tókst ætlunarverk sitt, fæturnir á mér nötra af hlátri!

Cookie
Í þessu lagi syngur R. Kelly um það hvernig hann ætlar að berja píku þar til hún verður blá og marin. Hann segir heiminum að hann sé kökuskrímsli sem vill éta allt sem er sætt (píkur auðvitað). Hann vill brjóta hrygginn á stúlku eins og maður brýtur humarskel áður en maður étur humarinn. Síðan syngur hann um að það, að hann vill drepa píkuna og grafa henni gröf.

Á bara eitt orð yfir þetta. Frábært! Hluti af mér vill nefnilega deyja þegar ég les textana hans.

fidlu kelly

Throw this money on you
Með þessu lagi vill hann að við gerum okkur grein fyrir því, hversu mikilvægt það er að hórur segi ekki eitt einasta orð. Duh! Það skemmir stemmninguna! Nei, Það er betra ef hún talar með líkamanum, þið skiljið, svo hann geti kastað peningum í hana og einbeitt sér að aðalatriðinu, LJÓÐLISTINNI. Hann er sko upptekinn við að yrkja fallegt ljóð og bera rassinn á henni saman við eitthvað sem var stungið af her býflugna og bólgnaði upp.

Dýpra verður það ekki!

Marry The Pussy
Algjör eðalpíka, þessi píka sem R. Kelly er búinn að finna. Já, hún matar hann og er svo blíð við hann að hans sögn. Hann vill endurgjalda henni með því að „slá píkuna eins og hann eigi hana“. En til þess að eiga hana þarf hann að giftast henni og gefa henni hring.  Já, því ef maður er giftur einhverjum þá „Á“ maður auðvitað maka sinn, eða hvað? Og ef hann vill nú aðrar píkur þá bara reddar núverandi píkan hans því. Svo fjandi frábær píka! Best í heimi! En bestur allra er samt R. Kelly, því hann sér jú píkunni fyrir hreyfingu, og það er nú mikilvægast af öllu. Því annars gæti hún dáið, rotnað.

Hvað myndi þessi píka gera ef ekki væri fyrir R. Kelly?
kelly superman

You deserve better
Þetta lag er pínu öðruvísi. Eitthvað lag verður jú að vera það … því þótt píkur séu ágætar geta ekki öll lög fjallað um þær. Þannig að þetta lag er um stúlku sem hann vill bjarga. Hann er Superman og hefur kynhvötina sem læknar hana. Því kynlíf læknar öll mein. Hún ætti að ferðast eitthvað og redda sér sólbrúnku og bikinilínu finnst honum. Og eins og það sé ekki nógu rausnarlega hugsað af honum þá bætir hann við, að hún ætti alls ekki að vinna úti, hann ætlar að beita sér fyrir því að hún geti eytt lífinu í að versla.

Hann veit sko hvað er mikilvægt í lífinu. Svo frábær náungi!

My Story
Með þessu lagi vill R. Kelly segja SÍNA sögu, oh…um peninga, bíla og hórur. Hann lemur píkur eins og í myndinni Django. Ái. Og segir okkur að hann ætli að fara með stúlkurass í súkkulaðiverksmiðju.

Frábærar myndlíkingar, Kelly.

Spend that
Ég er full aðdáunar en ætla að eftirláta Kelly að segja þetta með eigin orðum:

„Ef við förum héðan í kvöld ætla ég að ganga frá rassinum á þér, stelpa. Horðu á mig eins og ég eigi þetta. Besta píkan á barnum og þú veist það.  Ég geri þig svo blauta að þú verður að moppa.“

Næs. Mig hefur alltaf langað til að láta ganga frá rassgatinu á mér? Draumur allra stúlkna. Pínu leiðinlegt að hún þurfi að moppa. Getur hann ekki gert það …. í nafni jafnréttis eða eitthvað?

Every position
R. Kelly vill ríða í öllum stellingum. Hann er ekki vandlátur þannig.

Ohh, besta manneskja ever! Mig langar að giftast honum.

Tear it up
Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þetta lag fjallaði um nauðgun. Hann vill hafa það harkalegt, rífa hana í sig, saxa og ríða, en er það ekki það sem stelpur vilja? (Heimild: Klám) Hann vill að stelpur leyfi honum að gera hvað sem hann vill við þær og það mun vera … að aflífa á þeim píkurnar.

Þessi hrollvekja verður metsölubók hjá þér R. Kelly. „Ískaldi píkumorðinginn.“ Ég  er viss um að þú vinnur Nóbelsverðlaunin fyrir þessa bók.

Show ya pussy
Þetta verður að teljast besta lag plötunnar. Sjáið nú til. R. Kelly vill valsa um klúbbinn með strippara að eigin vali. (Vá, hvað það kemur á óvart) Þannig að hann biður einhverja dömuna að klifra upp á strippstöngina, renna sér niður hana, beygja sig, twerka og fara í splitt (fjandi hæfileikaríkur strippari!) til að hann geti …*trommusláttur*… séð á henni píkuna!

Það er greinilega mjög áríðandi og er honum afar hugleikið því hann nefnir það oft og hér er tilvitnun: „Now let me see, show your pussy, show your pussy, show your pussy, show your pussy.“

Hann kallar stelpuna mömmu litlu. Ásættanlegt. Líklega vill hann gera eftirfarandi við mömmu sína. Læsa hana inni. Slá hana á rassinn, rass sem er svo því sé haldið til haga stærri en full skál af búðingi. Mála hana í framan eins og trúð. Hella einhverju upp í hana. Hún er svo frábær, hún „mamma litla“, því hún mun ekki hringja á lögregluna þegar hann „drepur á henni píkuna“.

En … hér kemur sorglegur endir.  Hversu frábær sem hún er þá getur hann ekki gifst henni því hún er svo óþekk. (Ólíkt honum, auðvitað).

Fyrir áhugasama eru enn fleiri frábær lög á nýju plötunni hans R. Kelly en mér finnst eins og ég hafi náð að draga fram það besta.

Það er líka kominn tími til þess að fara að sofa, áhyggjulausum svefni, vitandi það að lög og textar á borð við þessi búa okkur heim og tryggja færri nauðganir.

„KEEP CALM AND LOVE .“

-R. KELLY


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283