„Hr. Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis.
Öryggisvörður Alþingis er í fréttum fyrir að beita mann ofbeldi fyrir utan Alþingishúsið. Fjölmiðlar hafa birt myndbandsupptökur af atburðinum. Öryggisverðir geta starfsins vegna þurft að beita ofbeldi, svo mikilvægt er að faglega sé staðið að því að meta réttmæti þess þegar ofbeldi hefur verið beitt.
Óskað er eftir því að forseti Alþingis sem yfirmaður starfsmanna þingsins rannsaki málið. Í anda faglegra vinnubragða er jafnframt óskað eftir því að forsætisnefnd fari yfir málið og hafi þá m.a. til hliðsjónar gildi skrifstofu Alþingis: ‘Þjónustulund, Fagmennska, Samvinna’ og hæfniskröfur öryggisstarfsmanna Alþingis s.s. hæfni í mannlegum samskiptum og fáguð framkoma.“
Hér er myndbandisupptakan á YouTube deilt af Stundinni:
Jón Þór Ólafsson
Þingmaður Pírata og áheyrnarfulltrúi í forsætisnefnd.“