Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Út vil ek

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Málverk Hauks Stefánssonar frá 1930 af Snorra.

Hver var það sem mælti þessi fleygu orð og hirti ekki um konungsboð?
Það var Snorri Sturluson sjálfur og í þessum orðum hans fólst sú skoðun hans að hann væri frjálsborinn Íslendingur en ekki konungsþræll. Hann vildi út til Íslands, heim til landsins síns, heim til þjóðar sinnar.

Nú til dags hefur dæmið snúist algjörlega við og allir sem geta og hafa tök á flýja Ísland og það hörmungarástand sem hér ríkir í öllum málum og málaflokkum sem snúa að þingi og þjóð.
Dekur stjórnvalda og grímulaus hagsmunagæsla við þá sem eiga peninga og fjármagn kemur niður á almenningi í landinu sem lýsir sér best í því að hinn almenni launþegi nær ekki endum saman nema vinna baki brotnu 2/3 af hverjum 24 tímum sem okkur er úthlutað í sólarhringnum og allar helgar að auki.

Foreldrar þekkja orðið ekki börnin sín og hafa engan tíma til að sinna þeim en henda þeim í stað þess fyrir framan tölvurnar og láta internetið um uppeldið sem hefur gert það að verkum að fæst börn og unglingar í dag hafa nokkurn minnsta skilning á íslenskri tungu, geta ekki lesið sér til gagns eða skemmtunar lengur.  En skiptir þú yfir í ensku er þetta ekkert mál.  Jafnvel börn niður í fimm til sex ára gömul skilja betur útskýringar á ensku heldur en gömlu góðu íslenskunni.

Mér er það minnisstætt þegar ég hóf sambúð með núverandi unnustu minni og við vorum að tala saman að hún vissi ekkert hvað gömul íslensk orð og orðasambönd þýddu og ég þurfti oft að verja löngum tíma í að útskýra fyrir henni samhengi þeirra og þýðingu. Þetta er því miður tilkomið af uppeldinu hjá henni, eða ætti maður frekar að segja uppeldisleysinu?

Sorglegt en satt að mörg börn og ungmenni upplifa þetta enn í dag og jafnvel er ástandið svo slæmt að foreldrar hafa ekki tíma til að lesa fyrir börnin sín, segja þeim sögur eða útskýra fyrir þeim margt af því sem við af eldri kynslóðum teljum sjálfsagða hluti að gera með börnum sínum.

Þetta er þó alls ekki algilt því margir foreldrar eru mjög duglegir að sinna afkvæmum sínum og mennta þau með lestri og útskýringum á því sem þau ekki skilja en margmiðlunarheimurinn er því miður orðinn besta barnapían í dag, illu heilli.

En aftur að Snorra Sturlusyni og orðum hans, því nú til dags eru umsnúningur orða hans með þeim hætti að fólk flykkist til útlanda í leit að betra lífi og það ekkert að ástæðulausu enda gera stjórnvöld allt hvað þau geta til að blekkja almenning og hreinlega ljúga að honum með fölsuðum reikniformúlum sem gefa það í skyn að Ísland sé best í heimi og hér sé ódýrast að lifa og að almenningur hafi það betra en nánast allir aðrir í heiminum öllum.

Staðreyndin er allt önnur og alþjóðlegar skýrslur hafa margsannað það að Ísland er fjórða dýrasta land í heimi og laun almennings með þeim lægstu sem gerast í Evrópu sem aftur gerir það að verkum að kaupmáttur almennings er einn sá lægsti í allri Evrópu.

En hvernig fá íslenskir hagfræðingar það út að kaupmáttur launa á Íslandi sé að aukast þegar laun í lægstu þrepum hafa ekki hækkað svo neinu nemi meðan nauðsynjavörur hafa hækkað upp úr öllu valdi síðustu ár?

Svarið er mjög einfalt.

Allir þessir hagfræðingar sem stjórnvöld vísa í fá sín laun frá þeim sem stjórna og niðurstöðurnar skulu því vera eftir þeirri línu sem stjórnvöld leggja hagfæðingunum, annars geta þeir farið og fundið sér eitthvað annað að gera. Og ræflarnir kjósa frekar að rústa mannorði sínu en missa launin og sponslurnar sem þeir fá fyrir að falsa tölurnar, stjórnvöldum í hag.

Staðreyndin er nefnilega sú að þessar reikniformúlur ganga út á það að taka öll laun í landinu og setja í einn pakka og reikna svo út meðaltalið. Auðvitað verður útkoman jákvæð fyrir vikið fyrir stjórnarherrana og þeir geta hreykt sér af því eins og haninn á fjóshaugnum.

Ef einhver skynsamur tæki sig nú til og reiknaði út kaupmátt þeirra tekjulægstu frá 2009 til dagsins í dag yrði útkoman bæði svört og ljót fyrir stjórnvöld í landinu og algjör áfellisdómur yfir hagstjórninni því staðreyndin er sú, lauslega útreiknað af undirrituðum, að kaupmáttur þeirra lægst launuðu í þessu landi hefur í raun rýrnað á milli 35 til 40% á þessum tíma og í raun meira en það vegna alls konar álaga frá stjórnvöldum sem ekki eru tekin með í reikninginn. Væri allt tekið saman og reiknað í botn, væri hægt með góðri samvisku að segja að rýrnunin væri á bilinu 70 til 80% á þessum fimm árum.

Þeir sem hafa tækifæri til að vinna hafa flúið unnvörpum til Noregs á síðustu árum en þeir sem eru öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafa flúið til Spánar og Portúgals. Einstaka einstaklingar hafa farið til Þýskalands og Danmerkur því þeir hafa tengsl í þessum löndum og hafa jafnvel búið þar áður.
Nýjasta trendið er svo Svíþjóð en undirritaður heillaðist gjörsamlega af landi og þjóð á þeim tveim vikum sem hann dvaldi þar um síðustu mánaðamót.

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Netto í Svíþjóð og ekki ódýrasta búðin. Margfaldið verðið með 16 til að fá íslenska verðið.

Skoðum nú aðeins verðlag á matvöru á Íslandi samanborið við önnur Evrópulönd og höfum til viðmiðunar að um sé að ræða fólk sem er á íslenskum tekjum en hafa ekki tekjur af atvinnu í því landi sem miðað er við, enda er meiningin að sjá hvernig íslenskir lífeyrisþegar geta komist af í viðkomandi löndum með lífeyri frá Íslandi.

Ég óskaði eftir því í pistli fyrir um mánuði síðan að fólk sem býr erlendis myndi senda mér sundurliðaðar kassakvittanir frá síðustu matarinnkaupum svo hægt væri að bera saman verðið miðað við Ísland. Fisk tel ég ekki með í þessu því það vita allir að það jafnast ekkert á við íslenska fiskinn þegar kemur að gæðum.
Niðurstöðurnar voru mjög einfaldar því Noregur stóð nánast jafnfætis Íslandi í verði á nauðsynjum en þess má líka geta að laun þar eru allt að þrisvar til fjórum sinnum hærri heldur en á Íslandi og kaupmátturinn þar af leiðandi þrisvar til fjórum sinnum meiri. Það er bara staðreynd.

Ef við síðan lítum til Danmerkur og annarra Evrópulanda sem eru í ESB, þá kemur í ljós að verð á matvælum er allt helmingi til þrisvar sinnum lægra en á gamla klakanum. Laun í þeim löndum eru líka mun hærri en á Íslandi þó svo stjórnmálamenn haldi öðru fram og ljúga þar með vísvitandi að landanum.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
11164083_10205240539385796_1341687407_n

Sama er að segja um Svíþjóð en ég fékk sjálfur að kynnast því hvernig matarverði var háttað þar meðan ég var úti. Það er skemmst frá því að segja að matarverðið er tvisvar til þrisvar sinnum lægra hjá kaupmanninum á horninu í Svíþjóð heldur en á Íslandi og enn ódýrari ef farið er í stórkaup og orðið sér úti um afsláttarkort, þá getur verðið farið niður í einn fjórða af því sem það kostar á Íslandi.
Þetta vilja íslenskir stjórnmálamenn ekki að almenningur viti og reyna því að ljúga og blekkja almenning með fölsuðum og upplognum tölum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.

Ég hef tekið saman hluta af þeim kassakvittunum sem mér hafa verið sendar og sett í albúm á bloggsíðu minni þar sem fólk getur skoðað þá og borið saman verðið á þeim og á Íslandi. Mikilvægt er líka að fólk geri sér grein fyrir þeirri staðreynd að gæði á matvælum, kjöti, grænmeti og ávöxtum er almennt mun betri en á íslenskum matvælum, sérstaklega grænmeti og ávöxtum.

Svona bull þarf að stoppa og reka ofan í stjórnarliðana og fylgismenn þeirra sem dreifa lygunum víða eins og hægt er að sjá í svo mörgum bloggfærslum á netinu og stöðufærslum illa gefinna einstaklinga sem halda að stjórnmál séu einhver keppnisgrein þar sem staðið skal með sínu liði eða sínum manni fram í rauðan dauðann burtséð frá því hvað er satt eða logið.

Fjölmiðlar á Íslandi og blaðamannastéttin er eitthvað sem þarfnast rækilegrar tiltektar og fólk á að vera gagnrýnið á fjölmiðla, framsetningu þeirra á efnistökum og þá sérstaklega því sem þeir segja ekki frá. Það er nefnilega staðreynd sem verður ekki umflúin, hvað sem þeir reyna, að sum mál má einfaldlega ekki fjalla um nema á jákvæðum nótum.

Eitt þeirra mála er kvótakerfið sem komið var á árið 1983 og hefur gert það að verkum á þeim rúmlega þrjátíu árum sem það hefur verið við lýði, að hagsæld þjóðarinnar hefur hrunið niður úr öllu valdi og í dag er svo komið að tekjur ríkisins vegna þess hafa minnkað um áttatíu til níutíu prósent meðan þeir sem eiga útgerðirnar, (ekki kvótann, hann er skýlaus eign þjóðarinnar), hagnast um tugi ef ekki hundruð milljarða á ári meðan ríkið fær í sinn hlut aðeins um 10% af heildartekjum auðlindarinnar.

Nánast á hverjum degi eru fréttir af uppgangi útgerða hér á landi, hagnaður upp á fleiri tugi ef ekki hundruð milljarða og arðgreiðslur til eigendanna skipta milljörðum á ári meðan fólkið sem skapar auðinn lepur dauðann úr skel og fær íspinna í bónus fyrir vel unnin störf og gerist fólk svo ósvífið að ræða um óréttlætið, missir það vinnuna og mannorðið svert svo það á sér ekki viðreisnar von framar.

Nú síðast hækkuðu stjórnarliðar í HB Granda laun sín fyrir stjórnarsetu í fyrirtækinu um 33,3% á sama tíma og fólkinu á gólfinu voru boðin 3,5% hækkun á sín laun.

Svona framkoma er ekkert annað en ógeðsleg og hegðun þessara einstaklinga sem eru með milljónir í mánaðarlaun sýnir bara hvað þetta fólk er gjörsamlega siðblint, óheiðarlegt og illa innrætt.

En það má ekki hallmæla kvótanum í fjölmiðlum eða umræðuþáttum. Það er algjört tabú.

Sóknarhópurinn undir stjórn Óla Ufsa hefur barist hatrammlega fyrir því að kvótakerfið verði aflagt og tekið upp sóknarmark með allan afla á markað og fjölmiðlum hefur ítrekað verið bent á að fá Óla og fylgismenn hans sem eru vel að sér í þessum málum og hafa stúderað þau fram og til baka, sett upp reiknilíkön og kastað fram staðreyndum um óhagkvæmni kvótakerfisins og kosti þess að setja á sóknarkerfi, en verið algjörlega hunsaðir af ÖLLUM fjölmiðlum utan Útvarp Saga, sem hefur tekið nokkur viðtöl við þá.

„Stóru“ fjölmiðlarnir gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þagga þessa umræðu niður enda er þeim vel greitt fyrir það af SFS að þagga niður í þeim sem vilja auðmannadekrið burt, þar með talið kvótakerfið sem er að leggja landsbyggðina á íslandi í eyði.  Nú er búið að koma lygaáróðri útgerðanna inn í skólakerfið og notaðar falskar og upplognar skýrslur til að fegra málstað auðlindaþjófanna.

Síðan eru það gáfumennin í landsbyggðarþorpunum sem gegn betri samvisku mæra kvótakerfið í botn, vitandi að það er að eyðileggja þorpið þeirra og leggja byggðirnar í eyði.

Ég átti mér draum, en hann er dauður.
Það er ekki bara eitt, það er allt sem er að í þessu þjóðfélagi og ég tek mér því orð Snorra Sturlusonar í munn þegar ég segi að þetta þjóðfélag er ónýtt með öllu og landsmenn styðja eyðilegginguna án þess að lyfta fingri sér til varnar.  Ég get ekki og ég vil ekki lifa í svona skemmdu og spilltu þjóðfélagi þar sem allir eru á móti öllum, glæpa- og auðmannadekrið gengdarlaust og almenningur getur ekki staðið saman í því að koma spillingaröflunum frá völdum. Því segi ég og ég meina það:

„ÚT VIL EK“ og ég mun flytja af landinu um leið og tækifærið gefst.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283