Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gagarín, Obama, hundarnir og Eygló Harðar

$
0
0

Júrí Gagarín varð fyrstur manna til þess að fara út í geiminn árið 1961 á flauginni Vostok 3KA-3. Síðan hafa 536 manneskjur farið út í geim frá tæplega 40 þjóðlöndum ef marka má tölur NASA. Þar af einungis 55 konur. Dýr hafa hinsvegar ferðast um geiminn í töluverðum mæli og til að mynda hafa fleiri hundar en konur yfirgefið jörðina í geimfari.

Samkvæmt NASA hafa 57 hundar, tveir froskar, ein kanína, fjöldinn allur af öpum, skor-og skriðkvikindi allskyns, töluvert af snákum og náttúrlega þessi aragrúi af karlmönnum fengið að upplifa þyngdarleysið. En aðeins 55 konur. Enda dýr væntanlega betur til þess fallin að draga lærdóm af geimferðum en konur og líklegri til að deila lærdómnum með mannkyninu.

Michelle Obama varð fimmtug þann 17. janúar 2014. Hún veitti slúðurblaðinu People’s Magazine viðtal við þetta tækifæri sem í sjálfu sér er furðulegt því væntanlega hafa fleiri blöð og tímarit óskað eftir viðtali við þessa merku konu. En People’s magazine varð sumsé fyrir valinu og fékk einkaviðtal við þessi tímamót.

Þá ákvörðun má væntanlega þakka sérlegum ráðgjöfum forsetafrúarinnar og að henni forspurðri, því ég gef henni það að hafa betri dómgreind en svo. Það kann að vera alrangt hjá mér. Kannski er People’s Magazine í miklum metum hjá Michelle.

Blaðamanni lá mikið á hjarta því hann spurði Michelle til að mynda eftirfarandi spurninga: Hvort hún hygðist nýta sér lýtalækningar þar sem aldurinn væri að færast yfir og hvort hún myndi nú skoða það að láta sprauta á sér andlitið með bótoxfyllingum?

Michelle svaraði því til að hún efaðist um það, þó maður skyldi aldrei segja aldrei.

Ekki er langt síðan að forseti bandaríkjanna og eiginmaður Michelle varð sjálfur fimmtugur en þrátt fyrir dauðaleit fann ég hvergi að sambærilegar spurningar hefðu verið lagðar fyrir hann í tilefni afmælis hans. Hvergi var karlinn spurður hvort hann, nú kominn að fótum fram, hefði í hyggju að láta framkvæma á sér svuntuskurð til að fjarlæga ört stækkandi bumbuna eða hvort hann þyrfti ekki að láta fylla upp í þunnildislega þjóhnappana.

Michelle var líka beðin af fyrrnefndu tímariti að koma með ábendingar um nokkrar léttar líkamsræktaræfingar fyrir konur sem komnar væru af léttasta skeiði enda er hún eins og alheimur veit, líkamsræktarþjálfari að mennt…eða er það ekki annars?

Spurningar á borð við þær sem lagðar voru fyrir forsetafrúna eru gildrur sem fjölmiðlar leggja fyrir konur. Gildrur sem þær ganga í aftur og aftur og aftur. Með því að svara þessum spurningum og öðrum viðlíka halda konur sjálfar því á lofti að þetta séu hjartans málin og einu hugðarefnin.

Sjáið fyrir ykkur Kára Stefánsson í viðtali:

Segðu okkur Kári, Hvað ertu með í handtöskunni?

Er þetta þinn náttúrulegi háralitur?

Hvaða snyrtivörum mælirðu með?

Hefurðu íhugað að fá þér botox?

Ráðherra í ríkistjórn Íslands Eygló Harðardóttir birtist í sjónvarpsþætti á Skjá einum á dögunum þar sem hún var að versla í Krónunni. Tilefni viðtalsins var að kynna til sögunnar Krónu-appið sem ku auðvelda fólki innkaupin. Mér fannst furðulegt að ráðherra teldi það sæmandi að auglýsa vörumerki með þessum hætti og í annan stað að opinbera það að hún eigi í vandræðum með jafn einfalda aðgerð og það að kaupa í matinn.

Það er alveg hugsanlegt, ef maður er þjóðkjörin til ákveðinna starfa, að setja sér einhverskonar siðareglur um það að hygla ekki einu fyrirtæki umfram annað. Og jafnvel að setja sér þá meginreglu að gera það alls ekki.

Konur sem leggja metnað sinn í það að vera teknar alvarlega geta haft töluvert um það að segja hvernig þeim eru gerð skil í fjölmiðlum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images