Fyrir stuttu opnaði vefsíðan Fjölbreytt forysta og er tilgangur síðunnar er að vekja athygli á mikilvægi jafnrar þátttöku kynjanna í forystu íslensks atvinnulífs. Þar má einnig finna tengla á aðrar vefsíður eins og Lean In, Female Future NHO og fleiri sambærilegar síður sem fjalla um mikilvægi fjölbreytni í forystu fyrirtækja.
Í september næstkomandi verða tvö ár síðan lög um kynjakvóta í stjórnum íslenskra fyrirtækja og lífeyrissjóða tóku gildi. Síðan þá hefur konum fjölgað til muna í stjórnum og þá sérstaklega í stærri fyrirtækjunum en sú þróun hefur þó ekki enn náð markmiði laganna um 40% hlutfall hvors kyns í stjórnum allra fyrirtækja sem heyra undir löggjöfina. Rannsóknir hérlendis hafa sýnt að viðhorf til kynjakvóta eru jákvæðari nú en fyrir lagasetninguna.
Þeir sérfræðingar sem rætt er við í viðtölunum á vefsíðunni, tala um að með fjölgun kvenna hafi fjölbreytni aukist í stjórnunum. Konur eru nú í meirihluta í stjórnum þriggja af þeim þrettán fyrirtækjum sem skráð eru á markað í Kauphöllinni en í hinum tíu er hinu lögbunda lágmarksviðmiði náð. Konur eru stjórnarformenn í fimm af þessum þrettán fyrirtækjum.
Aðstaðdendur síðunnar fengu í lið með sér útvalsteymi grínista og kvikmyndagerðarfólks til að hjálpa til við að útbúa sérstaka vitundarvakningu um mikilvægi þess að konur og karlar sitji saman við stjórnarborðið og séu í forystu fyrirtækja.
Þar fer Jón Gnarr á kostum sem „Freki karlinn“ en hann leikur ráðríkan forstjóra í myndbandi sem má finna hér:
Freki karlinn from Jafnrettisstofa on Vimeo.
Það er Edda Jónsdóttir í samstarfi við Jafnréttisstofu sem hafði veg og vanda af gerð vefjarins Fjölbreytt forysta.is. Vefsíðan er unnin með styrk frá Progress-sjóði Evróusambandsins.