LÍFSINS KOSS
Í fjörusandi hef ég heiminn kannað
og hugur minn þar iðkar víst þá spekt
að trúa því sem sálin getur sannað
þótt sýnist mér að margt sé ótrúlegt.
Ég alsæll nýjum tíma tek á móti
er taktföst aldan raular indælt lag,
já, trúin mín er geymd í fjörugrjóti
sem gárur hafsins kyssa nótt sem dag.
Ég sit og heyri glaðlegt öldugjálfur,
ég gleymi mér og hjartað slappar af
svo birtist ég í sálu minni sjálfur
og svíf með draumum útá opið haf.
Ljósmynd eftir Ásgeir Kröyer og ber heitið Ocean Dialogue