Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sykurlaus súkkulaðiís – Himnaríki

$
0
0
Svona þegar hitinn er aðeins farinn að komast yfir frostmark og sólin farin að skína, þá kemur þörfin fyrir ís. Þessi er alltaf vinsæll á mínu heimili.


Súkkulaðiís

1 bolli sukrin melis
3 egg
1 bolli ósykrað kakó
1 bolli möndlumjólk eða laktós frí mjólk
1,5 bolli rjómi
6 dropar bragðlaus stevía
saltklípa
Egg, sukrin melis, kakó og mjólk sett í skál og blandað vel saman. Setja skálina í örbylgju í ca 20 sek. og hræra vel saman þar til vel blandað. Því næst er salt og rjómi bætt út í (óþeyttur). Sett í box og inn í frysti. Ef þú ert alveg að farast úr ísþörf geturðu sett ís í nokkur muffinsform og sett í frystinn og látið bíða í ca 20 mínútur. Þá ertu komin með fínar súkkulaði ískökur :) Áður en ég fæ mér ís er ég farin að láta kalt vatn renna á ísskálina sem ég ætla að nota og setja hana í frystinn í nokkrar mínútur. Ísinn helst þá kaldur og góður á meðan þú borðar hann ;)

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283