Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þráinn um Halldór

$
0
0

Sannir framsóknarmenn og aðrir sem það vilja gætu best heiðrað minningu Halldórs Ásgrímsson sem nú er nýlátinn með því að taka upp það baráttumál sem hans verður vonandi minnst lengst fyrir og berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu og þeim framförum fyrir land og þjóð sem það mundi hafa í för með sér.

Þegar ég minnist Halldórs er það þetta stóra mál sem er mér efst í huga. Hann átti gífurlegan langan feril á efstu hæðum íslenskra stjórnmála og gerði margt vel sem ekki verður rifjað upp hérna frekar en þau mistök sem honum urðu á, enda var ferillinn langur.

Hann var víðsýnn maður á margan hátt og taldi að Ísland gæti aðeins haft af því hag og framfarir að taka þátt í samstarfi við aðrar þjóðir, einkum með þátttöku í Evrópusambandinu, samtökum um frið, menningu, lýðræði og farsæl viðskipti.

Halldór heitinn þorði og hafði styrk til að setja þetta hugsjónamál sitt á oddinn í sínum flokki en honum entist ekki ævin í stjórnmálum til að bera það fram til sigurs. Framsýni hans og hugrekki á þessu sviði munu að mínu mati vega þungt þegar sagan sjálf leggur mat á langan stjórnmálaferil þessa fallna foringja.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283