Með hækkandi sól er áríðandi að muna að verja húðina vel ef þú ætlar að dvelja langdvölum úti við. Sólin þurrkar húðina og sólböð flýta fyrir öldrun húðarinnar. Decubal 2 in 1 sólarúði er bæði sólarvörn og rakagefandi krem í einni vöru. Decubal 2 in 1 sólarúði hefur sólarvarnarstuðulinn SPF 30 og veitir vörn gegn bæði UVA og UVB geislum sólarinnar.
Sólarúði er léttari valkostur en sólaráburður og hann má nota á bæði andlit og líkama allrar fjölskyldunnar og gefur húðinni frábæran raka. Úðinn hentar börnum sérstaklega vel þar sem hann er auðveldur í notkun og hentar viðkvæmri húð. Þessi frábæra sólarvörn er líka vatnsfráhrindandi sem er kostur fyrir þá sem ætla að stunda sund og sjóböð eða skella sér á ströndina í sumar.
Þessi sólarúði er sá fyrsti á markaðnum sem bæði verndar húðina með SPF 30 og annast á sama tíma þurra og viðkvæma húð með nærandi innihaldsefnum. Úðinn inniheldur Aloe Vera sem gefur raka og róar viðkvæma húð og E-vítamín sem styrkir varnir húðarinnar og hjálpar henni að verjast UV geislum.
Decubal 2 in 1 sun spray hefur hlotið umhverfisvottun Svansins og er án parabena, ilm- og litarefna. Sólarúðinn fæst í apótekinu þínu.