Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heppin ég!

$
0
0

Árdís Flóra Leifsdóttir skrifar:

11329907_10153247918595781_422024337611363427_n

Nú er ég búin að skila af mér 12.052 orðum í B.Ed.-verkefni í kennslufræðum við Háskóla Íslands og get alveg bætt við nokkrum orðum um lækna og verkföll síðustu mánuði. Fyrir nokkrum árum greindist ég með æxli í höfðinu og að þeirri greiningu komu fjölmargir aðilar úr læknastéttinni.

Ég fór í aðgerð og að því batteríi komu sennilega enn fleiri aðilar úr sömu stétt. Þetta ferli var allt gott og blessað og ég lifi mínu lífi í dag svo gott sem laus við margra ára höfuðverk og vesen, þökk sé öllum þessum aðilum. Einn af þessum aðilum er einn færasti læknir á sínu sviði hér á landi og ég á honum heilsu mína að þakka.

Æxlið mitt er ekki eitthvað sem er þekkt hér á landi og hans margra ára nám og starfsreynsla á virtum sjúkrahúsum erlendis gerðu það að verkum að rétt greining kom fram.

Í aðgerðinni var farið inn í höfuðkúpubotninn í gegnum nefið á mér og pöntuð sérstök tæki erlendis frá til þess. Aðgerð af þessu tagi er ekki algeng á Íslandi en þökk sé lækninum mínum þurfti ég ekki að fara til útlanda og láta framkvæma hana þar. Aðgerðin heppnaðist vel og tilgangi hennar, að tæma æxlið af vökva og taka sýni úr því, var náð. Því miður skaddaðist augntaugin mín í aðgerðinni en hún hefur nú gróið og óhappið hefur engar afleiðingar fyrir mig í dag.

Ég segi óhapp en ekki mistök því þessi taug sést ekki með berum augum og í mínu tilfelli var hún ekki á réttum stað. Hún hafði færst vegna æxlisins og læknarnir gátu vitaskuld ekki séð það fyrir.

Í viðtali við mig í ónefndu tímariti, sem átti í fyrstu að fjalla um andlega líðan sjúklinga eftir aðgerðir, var fjallað um þetta ferli sem ég gekk í gegnum að greinast með æxli. Í greininni var fjallað um óhappið og á forsíðu tímaritsins var talað um það sem mistök. Ég var og er ekki sátt með þessi orð þar sem þau eru ekki sönn þar sem ekki var um eiginleg mistök að ræða. Mér finnst lítið hafa verið gert úr læknunum sem framkvæmdu aðgerðina og vinnu þeirra. Ég ber að sjálfsögðu engan kala til þeirra þar sem þeir gerðu svo mikið fyrir mig og vona innilega, ef þeir hafa séð viðtalið, að þeir hafi ekki tekið þessi orð til sín.

Ég tel sjálfa mig vera afskaplega heppna manneskju og hafa sloppið vel frá þessu öllu saman. Í fyrsta lagi er æxlið mitt góðkynja og mun sennilega ekki hafa áhrif á mitt líf þó ekki sé hægt að fjarlægja það. Ekki eru allir jafn heppnir og ég sem er ekki með hættulegan sjúkdóm, og í verkföllunum fá þeir einstaklingar ekki þá þjónustu sem ég fékk þegar ég greindist. Í öðru lagi er ég oftast verkjalaus og lifi mínu lífi í dag, líkamlega hraust og heilbrigð, þökk sé læknunum og hinu starfsfólkinu sem komu að þessum veikindum mínum. Án þeirra væri ég enn hálfrugluð af verkjalyfjum og engan veginn þátttakandi í lífinu. Í þriðja lagi greindist ég með æxlið áður en verkföllin hófust og ég fékk þá þjónustu sem ég þurfti á skömmum tíma.

Undanfarið hefur verið og er enn mikið álag á heilbrigðisstéttinni vegna verkfallanna. Allir sem koma að þessum geira mynda eina keðju og ef einn hlekkur eða fleiri hverfa laskast starfsemi keðjunnar og meira álag verður á þeim sem eftir eru.

Það bitnar á sjúklingum og samkvæmt því sem maður heyrir í fjölmiðlum er ástandið orðið lífshættulegt. Ég hef lítið vit á því hvernig verkfallsmálin standa eða hvort einhver sátt sé á leiðinni en ég vona svo innilega að þessu fari að ljúka.

Ekki eru allir jafnheppnir og ég sem fékk fulla þjónustu og meira en það frá lækninum mínum og hans teymi og var þar að auki ekki í lífshættu. Þeir aðilar sem komu að mínum málum unnu sína vinnu 110% og eiga skilið laun sem samræmast því.

Ég er ekki alveg viss um tilgang minn með þessum tæplega 700 orðum en á einhvern hátt er hann sá að styðja við fólkið í heilbrigðisstéttinni og fólkið sem þarf á þjónustu þeirra að halda.

Heil og sæl, Árdís – háskólanemi og heppinn æxliseigandi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283