Loksins! Dagurinn er runninn upp! Beauty Tips Facebook síðan logar í dag með frásögnum kvenna sem sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þær stíga nú fram í tugavís og segja sögur sínar ein af annarri og draga ekkert undan.
24.642 konur eru meðlimir síðunnar og í dag er dagurinn sem margar þeirra rísa upp, stíga fram, segja frá og skila skömminni á réttan stað. Til gerandans!
Íslenskar konur hrinda í dag af stað byltingu undir formerkjunum #þöggun & #konurtala



