Facebookhópurinn „Prjónað fyrir stjórnarskrá“ stendur fyrir fjöldaprjóni á Austurvelli frá kl. 15.00- 17.00 í dag laugardaginn 06.06.15.
Þetta er liður í átaki til þess að minna á nýju stjórnarskrána sem kosið var um lýðræðislegri kosningu 2012 og átti hún að taka gildi á 70 ára afmæli lýðveldisins, 17.06.2014! Lítið hefur spurst til hennar síðan og við hæfi að minna á hana nú þegar líður á þjóðhátíðardeginum.
Hópurinn hefur komið upp prjónastöðvum á kaffihúsum í bænum þar sem fólk getur sest og prjónað við 20 cm breiðan trefil og hvatt til þess að sem flestir fitji upp á einum slíkum.
Þessir bútar verða síðan sameinaðir í einn langan trefil og færður styttu Jóns Sigurðssonar þann 17.júní næstkomandi. Það verður prjónað í tjaldi Stjórnarskrárfélagsins á Fundi fólksins í Norræna húsinu frá 11.-13. júní og trefillinn settur saman.
Prjónakonurnar eru þekktar úr frönsku byltingunni, en það voru markaðskonur sem stormuðu vopnaðar að Versalahöll og kröfðust brauðs handa lýðnum sem sátu svo prjónandi við höggstokkana. Nú er verið að halda upp á kosningarrétt kvenna og vinnufólks, sem gengu áður fyrr prjónandi um héruð. Hin kvenlægu búsáhöld voru stórvirk í byltingunni síðustu, hvers eru prjónarnir megnugir?
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október 2012 samþykktu 67% kjósenda tillögur stjórnlagaráðs, en þar er að finna ákvæði um: auðlindir í eigu þjóðar, jafnt vægi atkvæða, þjóðaratkvæðagreiðslur, persónukjör, ráðherraábyrgð, náttúru og mannréttindi, svo eitthvað sé nefnt.
Talað hefur verið um kerfisvillu í stjórnmálum landsins og lausnirnar er að finna í nýju stjórnarskránni. Sýnum áþreifanlegan samtakamátt og prjónum saman þar til nýja stjórnarskráin tekur gildi. Þegar því markmiði er náð verða treflarnir gefnir til hjálparstarfs.
Viðburður er auglýstur hér.
Hér má sjá myndband frá Íslendingum í París sem prjóna fyrir stjórnarskrá.