Japönskt stúlka sem notar Twitternafnið @Kya7y birti á dögunum mynd af þessu listaverki. Það vakti athygli margra og yfir stúlkuna dembdust spurningar. Hún sagði forvitnum á Twitter að þetta hefði pabbi hennar teiknað fyrir 30 árum síðan og það hefði tekið hann 7 ár að ljúka verkinu. Allir vildu vita meira um föður hennar, var þetta þekktur listamaður? Verkfræðingur? Arkitekt?
Öllum bar saman um þarna væri ótrúlegt verk á ferð. Völundarhúsið er teiknað á örk sem er A1 að stærð.
Eftir margar fyrirspurnir svaraði @Kya7y forvitnum aðdáendum föður hennar:
„þið viljið vita hvar pabbi vinnur?!! Hann vinnur í háskóla!!! Í íþróttahúsinu!!! hann er húsvörður!!!
Nú gefst áhugasömum kostur á að eignast eintak af verkinu því eftirprentanir fást hér
Ljósmyndir fengnar af twitter @Kya7y