María Lilja Þrastardóttir hvetur konur til að taka þátt í samstöðumótmælum með kvennastéttum og hefur auglýst þann viðburð á Facebook en þar segir:
„Aðför ríkisstjórnarinnar að kvennastéttum með nýsamþykktu lögbanni ber að túlka sem stríðsyfirlýsingu frá feðraveldinu. -Og nú á tímum þar sem samtakamáttur og kraftur einkennir kvennabaráttuna sem aldrei fyrr getum við ekki látið þetta líðast.
Konur, þetta er árið okkar. Árið þar sem byltingar á byltingar ofan eiga sér stað í nafni kvenfrelsis. Árið hvar við stigum niður fæti og sýndum, sameinaðar, að við látum ekki kúga okkur lengur, ekki á neinu sviði. Og síðast en ekki síst, stórafmælisár kvennabaráttunnar.
Mig langar því að hvetja allar konur til róttækra stuðningsaðgerða. Fyrirvarinn er kannski lítill en ég held við getum þetta alveg. Við getum allavega ekki staðið aðgerðalausar á meðan ríkisstjórnin sendir kvennastéttum fingurinn líkt og hér var gert fyrir helgi. Við getum haft áhrif og núna er tíminn.
Hvað með ef konur leggja niður störf frá fimmtán mínútum til klukkustundar á dag, klukkan ellefu, alla vikuna, og nota #kvennafrí2015 fyrir myndir og hugleiðingar tengdar baráttunni.
Gjörningurinn mun svo enda á föstudaginn þann 19. júní þegar konur taka langt kvennafrí í tilefni dagsins.“





