Við hittum Guðmund Haraldsson í nóvember en þá var hann búinn að fasta í fjörutíu daga. Þið getið séð viðtal sem Steinunn Ólína tók við Guðmund hér. Núna er Guðmundur komin í enn eina mataræðisrannsóknina og heldur fólki upplýstu um ferlið á Facebook. Núna er Guðmundur að prófa að borða eingöngu hráfæði og segir meðal annars á Facebook:
Hugarhungrið er eins og að vera í rússibana, stundum bara í rólegheitum og svo hendist ég niður brattann. En nú er smá tilraun í gangi, ég er að fá mér baunasprírur, fékk mér eitthvað sem heitir próteinblanda og Alfalfa. Sjáum hvernig það fer í þetta óargadýr sem virðist búa í maganum.
Við urðum að heyra í Guðmundi til að forvitnast um líðan hans.
Fyrst var það fastan og núna er það hráfæðið? Ertu ekki að missa þig í leitinni að hinu fullkomna jafnvægi?
Mér líður svolítið eins og manni í óbyggðum um þessar mundir, borða mikið hnetur, ávexti og grænmeti. En á meðan mér finnst þetta gaman þá held ég að þetta sé gott. Ég er sumsé á hráfæðitímabili núna. Nú er dagur 23 og mér finnst óargadýrið í maganum bara espast upp.
Ertu að borða hrátt kjöt og hráan fisk?
Ekki hrátt kjöt en reyktan og grafinn lax.
Hvað verður það næst Guðmundur, mannát?
Mannát? þú segir nokkuð, kannski bara að bæta við einu tímabili!
Er þetta ekkert álag fyrir líkamann, þessar þrautir sem þú ert að leggja á þig?
Ég held að þetta sé jákvætt fyrir líkamann og betra en að vera í frekar einhæfu fæði eins og mér fannst ég svolítið vera svona yfirleitt. Þetta tímabil er eiginlega að sumu leyti búið að vera erfiðara en fastan sjálf en það er engu líkara en að það gerist eitthvað nýtt í líkamanum nú þegar ég hef gefið þessu smá tíma.
Hvað ætlarðu að halda þetta hráfæðiát lengi út?
Ég er að hugsa um að taka 30-40 daga á þessu fæði. Er orðin soldið leiður á þessu, að fá ekki heitan mat. Ég ætla svo að taka nokkur tilraunatímabil og enda svo þetta ævintýri næsta sumar á sérstakan hátt.
Við óskum Guðmundi góðs gengis og munum að sjálfsögðu fylgjast með áfram. Hér er viðtalið sem við tókum við Guðmund á djúsaföstunni.