Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Berglind stýrir Kronkron Fákaseli!

$
0
0

Berglind Rós Magnúsdóttir fatahönnuður starfar sem verslunarstýra í nýrri Kronkron-verslun sem verður opnuð í Fákaseli í lok janúar. Berglind býr á Selfossi með manni sínum Marinó og litlu guttunum Marteini Maríusi og Hafbergi Snæ. Kvennablaðið heyrði í Berglindi og fékk að vita allt um kaupkonustarfið og nýju Kronkron-verslunina.

Þú hefur verið í kaupkonubransanum í töluverðan tíma, segðu okkur frá ferlinum.
Ég man þegar ég var lítil að leika mér í búðarleik hjá ömmu á Seyðisfirði og fannst fátt skemmtilegra. Föt hafa lengi átt hug minn allan og ég hef í gegnum árin unnið margvísleg afgreiðslustörf. Eftir að ég eignaðist eldri son minn hóf ég að hanna og sauma föt fyrir hann og fékk fljótt mikla athygli frá erlendum aðilum. Þeir voru vel tengdir í erlenda barnafatabransanum og þannig kynntist ég ungum og áhugaverðum barnafatahönnuðum sem leiddi hugann að opnun á eigin verslun.

Dag einn sótti ég dóttur vinkonu minnar í leikskólann. Þegar ég mætti á leikvöllinn voru ansi margar dömurnar dressaðar alveg eins. Ég hefði aldrei getað giskað á hvaða barn ég ætti að taka með ef ég hefði ekki þekkt það á öðru en fötunum! Þetta atvik varð kveikjan að minni eigin verslun.

Ég vildi bjóða upp á vörur sem ekki voru seldar í öðrum barnafataverslunum hér á landi. Allar vörur Beroma urðu gríðarlega vinsælar og þetta var mjög skemmtilegur tími. Það átti þó alltaf illa við mig að vera búsett í sveitinni og reka fyrirtæki í Reykjavík. Ég margskoðaði að flytja á höfuðborgarsvæðið en gat ekki hugsað mér að verða af þeim forréttindum sem ég bý við á Selfossi.

Hvernig leystir þú það mál?
Í desember small þetta allt saman þegar ég fékk starf hjá Kronkron í nýju versluninni þeirra sem verður opnuð í lok janúar. Þá var ég loksins komin í drauma kaupkonustarfið og það í sveitinni! Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Kronkron og sótti oft innblástur til þeirra. Verslunin í Reykjavík er og hefur alltaf verið stútfull af einstökum gersemum og það var mikil hamingja þegar ég var orðin hluti af þeirri teymi.

bergl

Hvernig er umhverfi verslunarfólks hérlendis, m.a vegna samkeppninnar erlendis frá?
Umhverfi verslunarfólks hér á landi er gríðarlega erfitt. Það er mjög dýrt að flytja vörur til landsins og háir tollar, gjöld og skattar gera að verkum að það er erfitt að vera í samkeppni við allan heiminn. Fólk sér hag sinn í að versla erlendis og hér er mjög mikið um að fólk versli í erlendum netverslunum og láti senda á vini eða ættingja erlendis. Þeir koma síðan með vörurnar til landsins og sleppa þannig við öll þau gjöld sem bætast ofan á verslunarfólkið.

Svo virðist vera sem búðir bjóði mikið upp á sömu vörumerkin, hvernig stendur á þessu?
Þetta er fyrirbæri sem ég hef ekki enn þá náð að skilja og er aðalorsök þess að ég missti áhugann á að leita uppi nýjar og áhugaverðar vörur. Aðalmarkmiðið hjá mér þegar ég rak Beroma var að bjóða eingöngu upp á vörur sem ekki voru seldar í öðrum verslunum hér á landi. Ég sýndi skilning gagnvart birgjunum þar sem Ísland er lítill markaður en ég fékk í sífellu tölvupósta um að hinir og þessir aðilar með verslanir á Íslandi hefðu séð vöruna í minni verslun og vildu selja hana líka.

Það er til svo mikið af fallegum og skemmtilegum vörum í heiminum og það væri dásamlegt að sjá breiðara úrval hér á landi þar sem við erum ekki stór markaður. Ég hef líka heyrt marga tala um að ein af ástæðunum fyrir því að fólk vilji versla erlendis sé sú að þá fái fólk vörur sem það sér ekki á annarri hverri manneskju hér heima.

Þetta er einmitt ein af ástæðum fyrir minni hamingju yfir að vera  komin yfir til Kronkron, þau eru hvað þekktust fyrir sína eigin hönnun og sinn eigin stíl og hafa náð að halda því algjörlega.

Segðu okkur nánar frá Kronkron-ævintýrinu.
Síðasta sumar keypti hópur fjárfesta Ingólfshvol og eru nú að opna þar hestagarðinn Fákasel. Guðmar Þór Pétursson mun stjórna Fákaseli en hann hefur unnið við kynningu á íslenska hestinum í Bandaríkjunum og hefur verið farsæll keppnisknapi. Þarna verður einnig opnaður flottur veitngastaður og svo verslun KronKron. Elín Þorsteinsdóttir innanhússarkitekt sér um útlit staðarins sem er glæsilegt í alla staði.

Það er ljóst að Fákasel er algjör gullmoli og Kronkron verður verslun sem mun höfða til innlendra og erlendra ferðamanna, hestaáhugafólks og almennings hér á svæðinu. Eins og ég minntist á fyrr er Kronkron-verslunin í Reykjavík stútfull af alls konar gersemum, bæði erlendri hönnun og íslenskri. Þau eru hvað þekktust fyrir sína eigin hönnun, Kron by Kronkron sem verður að sjálfsögðu fáanleg í nýju versluninni og allar vörurnar verða í þeirra stíl. Við erum meðal annars í samstarfi við mikið af færu handverksfólki sem búsett er í nágrenni Fákasels um að hanna og framleiða með okkur vörur.

fakas  fakas2

Hvernig má nálgast upplýsingar um Fákasel?
Við notum facebook-síðuna okkar mikið til að kynna það sem er að gerast og þær vörur sem í boði verða en hana má finna á slóðinni HÉR. Það eru allir á fullu við að klára standsetningu svo við getum hlaðið inn vörum og opnað en stefnt er á allt verði tilbúið í lok janúar. Kvennablaðið bíður spennt!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283