Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sjálfskipaðir verndarenglar í óþarfa bardaga

$
0
0

Hugleiðingar að loknum 19. júní 2015

Síðastliðinn föstudag rann upp stóri dagurinn, sem þjóðin hefur beðið eftir með eftirvæntingu. Sumir vegna þess að þeir hlökkuðu til að safnast saman á skipulögðum samkomum til að fagna 100 ára kosningarétti kvenna til Alþingis, aðrir til að fagna 100 ára kosningarétti karla og enn aðrir til að fagna stórum sigrum í jafnréttisbaráttunni.

Þess var meðal annars minnst að konur sáu til þess að spítalar voru byggðir og lögðu grunn að nútíma heilbrigðiskerfi. Ýmsir héldu ræður, aðrir skrifuðu hástemmdar greinar um mikilvægi jafnréttis  og ein kona lét hafa eftir sér að það vantaði fleiri konur til að stunda áhættufjárfestingar á Íslandi. Sú kona er sennilega grunlaus um starfsemi fyrirtækisins Sinnum, þar sem ein kona virðist vera á við heilan her af karlmönnum í áhættufjárfestingum.

10847264_10207251924400001_6373480009711793887_o

Einungis einni viku fyrir 19. júní 2015 samþykkti ríkisstjórnin að setja lög á verkfall BHM og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Eins og flestir vita eru hjúkrunarfræðingar fjölmennasta kvennastétt landsins og þeirra helsta krafa í kjaraviðræðunum er að laun hjúkrunarfræðinga verði sambærileg við laun sambærilegra háskólamenntaðra stétta hjá ríkinu.

Ég verð að viðurkenna að ég verð alveg ringluð þegar þessir kumpánar tjá sig. Bjarni Benediktsson fullyrðir að hjúkrunarfræðingum hafi verið boðin 20% launahækkun, sem er víst skítnóg fyrir þessar frekjutuðrur og Sigmundur Davíð biðlar til heilbrigðisstétta um að taka þátt í að viðhalda hér mesta stöðugleika í manna minnum og samþykkja meint 20% tilboð Bjarna Ben um leið og hann lofar heiminum launajafnrétti árið 2022. Á sama tíma baðar femínistinn Gunnar Bragi Sveinsson sig í aðdáun Emmu Watson í tengslum við átakið HeForShe þar sem hann lofar konum heimsins vernd og stuðningi í jafnréttisbaráttunni.

Þið lásuð rétt, hann lofar að sjá til þess að karlar heimsins styðji baráttu kynjanna. Það sem þessir gaurar virðast ekki átta sig á er að kynjaBARÁTTA og launaBARÁTTA væru ekki til ef ekki væri fyrir forneskjuleg viðhorf þröngsýnna manna eins og þeirra þriggja. Ef þeir stæðu í raun með konum þá væri ekki um neina baráttu að ræða.

10734056_343532182508910_6952394985223449474_n

Sumum finnst sjónarmið sjötugra úrelt, öðrum líkar ekki viðhorf miðaldra, hvítra karlmanna, en ég frábið mér sjálfskipaða vernd framangreindra manna, manna með hugsunarhátt risaeðlna í jafnréttismálum.

Þið eruð ekki verndarar mínir, þið eruð í hinu liðinu, liðinu sem ég er að berjast gegn í launabaráttunni. Það er fyrir menn eins og ykkur sem kynin þurfa að heyja baráttu. Ef einhver ætlar að vernda mig og berjast fyrir hagsmunum mínum þá vil ég að það sé gert af heilindum, en ekki af illa spónlögðum loddurum í leit að 15 mínútna frægð í útlöndum.

Réttast þætti mér að samtökin UN women afþökkuðu stuðning þeirra ríkisstjórnarbræðra og bæðust afsökunar á þeim mistökum að hafa trúað því að þessir menn vilji breyta heiminum. Loforð þeirra um aðgerðir í jafnréttismálum er á pari við átakið Reyklaust Ísland árið 2000.

Frá því á áttunda áratugnum hafa konur notað kjörorðið ég þori, get og vil í baráttu sinni. Nú er að vaxa upp kynslóð kvenna sem þorir, vill og getur það sem hún ætlar sér. Ég efast ekki um að Gunnar Bragi, Sigmundur Davíð og Bjarni eru karlar sem þora og geta. Þeir hafa nefnilega kjarkinn til stórra og umdeildra verka, eins og Gunnar Bragi gaf í skyn á Alþingi nýverið, en þeir verða að vilja eins og konurnar forðum.

Getur verið að þeir vilji ekki jafnrétti? Getur verið að þeir vilji að konur séu einungis framarlega í góðverkum og sjálfboðastarfi og að laun þeirra séu ekki metin á við laun sambærilegra háskólamenntaðra stétta? Þora þeir að ganga fram fyrir skjöldu og vera fyrirmynd í heiminum á borði en ekki bara í orði? Þeir höfðu kjark til að setja lög á verkfall með tilvísun í mikilvægi hjúkrunarfræðingastéttarinnar, en virðist skorta kjarkinn til að greiða laun í samræmi við mikilvægið.

11406289_10207251856198296_4012700071560074070_o

Ég ber mikla virðingu fyrir fólki sem hefur manndóm í sér til að skipta um skoðun að vel athuguðu máli og gef því ríkisstjórninni tækifæri til þess að hugsa sitt mál. Framangreindir menn eru eins og allir aðrir karlar velkomnir í mitt lið. Þeim er velkomið að berjast fyrir mig, en þá þurfa þeir að finna kjarkinn og þorið og sýna viljann í verki, en ekki bara í orði á tyllidögum og í útlöndum. Menn sem þora ekki eiga að sjá sóma sinn í að taka ekki að sér ábyrgðarstörf. Menn eins og þeir munu aldrei gera neitt sem skiptir máli nema þeir vilji það.

Ég gef þeim fjóra mánuði og ég ætlast til þess að fyrir 24. október næstkomandi, þegar haldið verður upp á 40 ára afmæli kvennafrídagsins, verði komið á launajafnrétti á Íslandi. Ef svo verður ekki verð ég að líta á þátttöku ykkar í alþjóðlegri umræðu um jafnréttismál sem birtingarmynd fullkomins rofs á milli raunveruleika og skynjunar!

Ríkisstjórn Íslands sendi ég kæra kveðju að hætti Ingva Hrafns.

ingvihrafnfingur-250x250


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283