Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gallinn við „allt innifalið” ferðir

$
0
0

Verði svokallaðar “allt innifalið” ferðir vinsælli en þær eru nú þegar, mun ferðamennska í Grikklandi, Tyrklandi, Mexíkó, Dóminíkanska, Zanzibar, Egyptalandi og jafnvel á Spáni og í Portúgal verða afar einhliða og leiðinleg í framtíðinni.

Það hefur sýnt sig að á þeim stöðum þar sem slíkt er í boði fara fyrirtæki önnur á svæðinu mjög gjarnan í þrot eða hætta starfsemi. Þau geta ekki keppt við stórar hótelkeðjur sem bjóða gestum upp á allt innifalið.

Þetta hefur í för með sér að gestir láta sér oftar en ekki nægja að drekka, borða og njóta skemmtiatriða og afþreyingar á einu og sama hótelinu. Viðskipti við bari, veitingastaði og önnur fyrirtæki á svæðinu fara ört minnkandi og þeim fyrirtækjum fækkar jafnt og þétt. Sem aftur hefur í för með sér að bæir og staðir verða innantómari og hafa enn síður aðdráttarafl fyrir ferðamenn.

Staðan er orðin býsna alvarleg á stöku stöðum enda raunin sú að flest hótel og keðjur sem bjóða allt innifalið pakka eru í stórum meirhluta í eigu erlendra aðila og því skilar ferðamennska á mörgum stöðum afar litlu í kassann á viðkomandi stað eða landi.

Samtökin Tourism Concern sem berjast fyrir því að ferðamenn skilji eitthvað eftir sig í þeim löndum sem þeir dvelja í, hafa reiknað út að aðeins tíu prósent þess sem ferðamenn í Tyrklandi eyða, skilar sér í þarlendan efnahag. Um 90 prósent fara beint í vasa erlendra aðila sem eiga og reka hótelin. Sama staða er komin upp á Costa del Sol á Spáni og viðskiptaráð Andalúsíu hefur lýst áhyggjum af stöðunni.

Verst þykir þó ástandið í fátækari löndum á borð við Tanzaníu, Mexíkó og sérstaklega Dóminíkanska lýðveldinu en í hinu síðastnefnda eru 98 prósent hótela í landinu í eigu útlendinga og yfir 80 prósent af þeim bjóða ekkert annað en, allt innifalið gistipakka.

Með öðrum orðum; engir fjármunir skila sér til þess fólks sem býr í því landi sem ferðamenn eru að njóta. Allt fer í vasa herra Hilton eða hvað þeir heita allir hótelmógúlar heimsins sem selja aðgang að dásemdum ýmissa staða og landa en leyfa heimamönnum ekki að njóta ágóðans.

Enda varla tilviljun að allt innifalið pakkar eru sjaldan eða aldrei í boði á vinsælli áfangastöðum í ríkari löndum heims.

 

Þessi grein birtist fyrst á vefnum www.faraheill.is og er birt hér ofurlítið stytt með góðfúslegu leyfi ritstjórnar. Faraheill.is er skemmtilegur ferðavefur sem kappkostar að flytja lesendum gagnlegar upplýsingar um allt sem tengist ferðamennsku á mannamáli.

Upprunalegu greinina má nálgast hér.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283