Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Börn og jól

$
0
0

Þeir sem eiga ung börn vita að oft getur verið erfitt að halda reglu á börnum í desembermánuði og yfir jólahátíðina sjálfa.
Það er samt mikilvægt að reyna að halda einhverri lágmarks reglu og breyta ekki öllu, svo janúar verði ekki erfiður barnafjölskyldum.

Gott er að biðja jólasveininn að gefa börnunum frekar lítið dót í skóinn frekar en sælgæti því börn verða æst af miklu sykuráti. Nóg er um smákökur og annað góðgæti þó að börnin byrji ekki daginn á að borða nammi.
Þegar farið er í jólaboð með börnin er gott ráð að taka með eitthvað hollt og koma einhverju slíku ofan í börnin því oft eru þau ekkert sérstaklega spennt fyrir matnum og enda í sælgætisskálinni og eftirréttunum og verða þá yfirspennt.

Einnig er mikilvægt að halda svefnvenjum barnsins, það er ef þau leggja sig á daginn og láta þau ekki fara of seint að sofa. Það má þó alveg vaka aðeins lengur, en ekki þannig að það raski öllum svefnvenjum. Um að gera að taka með náttföt ef farið er í veislu og leggja börnin afsíðis. Mamma eða pabbi geta farið með barnið inn og sagt eina góða jólasögu og leyft barninu að hvílast. Oft er það nefnilega þannig að við erum að láta börnin vaka okkar vegna og þeim ekki til nokkurs gagns.

Ef farið er í jólaboð á heimili þar sem engin börn eru þá er sniðugt að taka með uppáhalds leikfangið svo þau hafi eitthvað til að dunda sér með annað en innanstokksmuni.  Þá eru ýmiss konar spil, púsl og eitthvað slíkt góður kostur.

Síðan eru það jólafötin. Ég man enn þegar ég var lítil og mamma setti mig í tjullkjólinn og sokkabuxur og bróður minn í jakkaföt, vesti og bindi. Þetta var nú ekkert sérstaklega þægilegur búningur. Mikilvægt er að börnin klæðist fötum sem eru þægileg og þau geta hreyft sig óhindrað í. Það er til mikið úrval af fötum sem eru bæði falleg og þægileg. Síðan er líka gott að taka með auka klæðnað, eitthvað sem þeim finnst gott að vera í og hægt er að setja þau í þegar líða tekur á veisluna.

Göngutúr og útivera eru mjög mikilvæg. Fjölskyldan ætti að nýta vel tímann saman um jólin og ekki gleyma útiveru. Einn góður göngutúr um hverfið er fín hreyfing og gott er að anda að sér hreinu lofti og börnin fá svolitla líkamlega útrás.
Njótið jólanna saman og eigið góðar stundir.

Ljósmynd: Heiða Halls


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283