Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Skiptir stærðin máli – píkur í kjarabaráttu, 1. bindi

$
0
0

Eins og við vitum öll hefur ríkisstjórnin þvertekið fyrir að hún mismuni kynjunum í launum, enda eru ráðherrarnir forystumenn í launajafnrétti á heimsvísu eins og átakið HeForShe ber með sér.

Ef kyn meginþorra hjúkrunarfræðinga, stærstu kvennastéttarinnar á Íslandi, skiptir ekki máli þegar laun þeirra eru ákvörðuð velti ég fyrir mér hvað ráði í raun þessum launamun.

Með vísan til lagasetningar á verkfall hjúkrunarfræðinga eru launin ekki ákvörðuð út frá mikilvægi starfsins, en talið var að almannaheill væri í hættu vegna verkfallsins og því lífsnauðsynlegt að setja lög á það. Þá má útiloka lengd náms, en hjúkrunarfræðingar hafa að baki lengsta grunnnámið af háskólamenntuðum stéttum hjá ríkinu, eða fjögur ár.

Auðvitað má velta fyrir sér framboði og eftirspurn en það er á sama veg.

Atvinnuleysi meðal hjúkrunarfræðinga hefur verið í kringum 0% í áratugi á meðan aðrar stéttir hafa mælt göturnar og sjá fram á atvinnuleysi í náinni framtíð, en geta samt vænst hærri launa en hjúkrunarfræðingar að námi loknu.

Gæti aldur ráðið ákvörðun um laun? Getur verið að hjúkrunarfræðingar séu svo ung og óreynd stétt? Varla, en meðalaldur stéttarinnar er 47, 5 ár og fyrirsjáanlegt að tæplega 1000 hjúkrunarfræðingar fari á eftirlaun á næstu árum á meðan meðalaldur í stéttarfélagi lögfræðinga er til dæmis 40 ár.

Eftir að hafa útilokað þau einföldu atriði sem að framan getur grunar mig að líffræðin spili þarna inn í. Getur verið að eitthvað í fari ráðherranna sjálfra orsaki þennan mun? Ég velti fyrir mér aldri ráðherranna en komst að því að það er hæpið að hann sé ráðandi þáttur þar sem heilbrigðisráðherrann er elsti ráðherrann og samkvæmt því ættu hjúkrunarfræðingar, ásamt öðrum heilbrigðisstéttum, að vera með hæstu launin, sem er alls ekki raunin.

Þá er í raun bara eitt eftir en það er typpastærðin. Getur verið að kvennastéttir eins og hjúkrunarfræðingar og leikskólakennarar, sem af líffræðilegum orsökum eru að meðaltali með stystu typpin, séu með lægstu launin einmitt vegna þess að þær eru með lítið eða ekkert typpi?

Er leyndarmálið kannski falið í typpastærð ráðherranna sjálfra? Þegar ég hugsa það betur þá er það líklegasta ástæðan. Ef það væri ekki ástæðan hefði þingið neyðst til að hækka veiðigjöldin og greiða sjómönnum markaðsverð fyrir aflann.

Andskotans óheppni alltaf að heilbrigðisráðherrar séu ýmist konur eða með minnsta typpið.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283