Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Öll fjölbreytni í dýralífið er af hinu góða – jafnvel eitthvert lúsmý

$
0
0

Eins fallegt og landið okkar er þá verður að segjast að dýralífið er ansi fábrotið og ómerkilegt. Það eru helst fuglarnir sem við höfum. Kannski fullmikið af furðufuglum og karluglum en að öðru leyti er eins og flestar tegundir hafi fattað það sem unga fólkið okkar er að fatta núna. Að umhverfið hér er bara ekki fjölskylduvænt. Hvort sem maður er manneskja nýkomin úr námi eða einhver eðla nýskriðin úr eggi. Það vinnur allt á móti manni hérna, veðrið og ríkisstjórnin þá helst.

Íslenska karluglan í sínu náttúrulega umhverfi.

Íslenska karluglan í sínu náttúrulega umhverfi.

Það er ekkert spennandi við íslenska náttúru. Hversu oft er hægt að sjá grjót, mold, mosa og aumingjalegar trjáhríslur raðað upp á mismunandi vegu áður en maður hættir að vera hrifinn? Annars staðar er miklu meira fútt í náttúrunni. Í þjóðgörðum Bandaríkjanna gætir þú mætt skógarbirni á leið þinni á kamarinn. Á Íslandi sérðu eina og eina rollu út í vegkanti eða forljótan gráhvítan fugl á girðingarstaur.

Í flestum öðrum löndum iðar allt af lífi. Snákar í hverjum runna, kýr sem koma með eða án horna, loðnar eða ekki og alls konar skordýr sem þú hefur ekki hugmynd um hvort séu banvæn eða hreinlega dýrindis lostæti bara. Það er skemmtilegt. Algengasta hreyfingin sem maður sér útundan sér í íslenskri náttúru hins vegar er plastpoki að fjúka.

Því hlýtur maður að fagna því að nýjar og spennandi tegundir komi hingað til lands og reyni að festa hér rætur. Að því sögðu býð ég að sjálfsögðu lúsmýið velkomið. Nafngiftin er líka sniðug. Að sameina tvær vinsælar tegundir hér á landi, lúsina og mýfluguna gerir það að verkum að lúsmýið er bara strax orðið eins og vinur manns. Og ekki skemmir fyrir hvað tegundin er gæf. Lúsmýið virðist sækja í okkur og er það vel, það er ekkert gaman að fá hingað nýja tegund sem síðan vill ekkert með okkur hafa og einangrar sig bara eins og ódýra vinnuaflið sem okkur finnst svo þægilegt að hafa hérna.

Landinn ætti því fljótt að taka lúsmýið í sátt. Einn og einn verður alltaf bitinn og þarf að þola mikil óþægindi og kláða í einhverja daga en það er fórn sem ég skal glaður færa á meðan það er ekki ég. Bara fá fjölbreytni í dýraflóruna.

En það er kannski eini galli á þessum nýja „vin“ okkar. Hann er fullmikill framsóknarmaður. Pínulítið snýkjudýr sem lifir á venjulegu fólki, sýgur úr því allt sem það getur, er bara til ama og virðist ekki nokkur leið til að losna við.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283